NEYTENDASAMTÖKIN telja sérstaka ástæðu til þess að hvetja neytendur til þess að gera innkaup sín hjá þeim verslunum sem tekið hafa upp leiðbeinandi verklagsreglur um skilarétt. Viðskiptaráðuneytið setti þessar reglur í janúar árið 2001 í samvinnu við Neytendasamtökin og fleiri. Í þeim er fjallað um rétt neytenda til þess að skila ógallaðri vöru innan 14 daga frá því að kaup voru gerð. Nú hafa Neytendasamtökin birt lista yfir þær verslanir sem hafa tilkynnt til samtakanna að þær hafi tekið upp skilaréttarreglurnar.
BT Glerárgötu 30, Akureyri
BT Kringlunni, Reykjavík
BT Miðvangi 1, Egilsstöðum
BT Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði
BT Skeifunni 11, Reykjavík
BT Smáralind, Kópavogi
Daman Laugavegi 32, Reykjavík
Office 1 Skeifunni 17, Reykjavík
Rammagerðin Hafnarstræti 19, Reykjavík
SonyCenter Skeifunni 17, Reykjavík
Verslanir sem vilja taka upp skilaréttarreglurnar geta fengið upplýsingar um þær hjá Neytendasamtökunum.
www.ns.is |