Töluverð mótmæli hafa verið í Bandaríkjunum við sýningu myndarinnar en þessi mótmælandi úr röðum gyðinga sem mótmælti á Times Square lýsir myndinni sem "hættulegu vopni gegn gyðingum".
Töluverð mótmæli hafa verið í Bandaríkjunum við sýningu myndarinnar en þessi mótmælandi úr röðum gyðinga sem mótmælti á Times Square lýsir myndinni sem "hættulegu vopni gegn gyðingum". — Reuters
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
UMDEILD mynd Mels Gibsons um síðustu tólf klukkustundirnar í lífi Jesú Krists - Píslarsaga Krists - var frumsýnd í gær í Bandaríkjunum. Myndin hefur þegar vakið mikil og sterk viðbrögð kirkjunnar manna og trúarsamtaka af ýmsum toga.

UMDEILD mynd Mels Gibsons um síðustu tólf klukkustundirnar í lífi Jesú Krists - Píslarsaga Krists - var frumsýnd í gær í Bandaríkjunum.

Myndin hefur þegar vakið mikil og sterk viðbrögð kirkjunnar manna og trúarsamtaka af ýmsum toga. Myndin var forsýnd í Los Angeles og fékk þá mjög sterk og tilfinningarík viðbrögð frá áhorfendum.

Það hafa einkum verið þrýstihópar gyðinga sem gagnrýnt hafa myndina og lýst yfir því að þeir óttist að hún ýti undir gyðingahatur vegna þess að í henni sé gefið í skyn að gyðingar hafi borið ábyrgð á dauða Krists. Gagnrýnendur sem mislíkar myndin hafa hins vegar fundið að henni fyrir yfirgengilega grimmd og alltof sýnilegt ofbeldi.

Helgiathafnir að loknum sýningum

En Gibson hefur varið myndina með kjafti og klóm og segir hana draga upp raunsanna mynd af píslargöngunni. Hann viðurkennir fúslega að hún sé ofbeldisfull og hefur brugðist svo við: "Ef það fer fyrir brjóstið á ykkur, farið þá ekki á myndina. Ef ykkur er skapi næst að ganga út í hléi, gerið það þá." En hann fullyrðir að hafa farið heiðarlega eftir lýsingum í Biblíunni og hefur hlotið stuðning frá mörgum kristnum trúfélögum.

Píslarsaga Krists var frumsýnd í 2.800 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum, víðar en nokkur önnur mynd á erlendu tungumáli eða sem fjallar um trúarlegt efni.

Mörg trúfélög hafa tekið sig til og keypt upp heilu sýningarnar af myndinni fyrir sóknarbörn sín. Leiðtogar First Family-kirkjunnar í Overland Park í Kansas-ríki keyptu t.d. upp 9 sýningar, alls 3500 sæti, og buðu upp á helgiathöfn að sýningu lokinni.

Mótmælagöngur hafa einnig verið haldnar vegna myndarinnar og voru farnar víða um Bandaríkin í gær, nálægt kvikmyndahúsum sem sýndu myndina.

Fræðimenn hafa sagt myndina uppfulla af sögulegum rangfærslum, eins og t.d. að Jesús skuli vera með sítt hár og að persónur mæli á latínu og aramísku. Gibson segist hins vegar hafa ráðfært sig við helstu fræðimenn, guðfræðinga, presta og trúarlega rithöfunda áður en hann skrifaði handritið og stendur því við hvert orð.

Meistaraverk eða misnotkun?

Sjaldan hafa gagnrýnendur vestra skipst eins rækilega í tvö horn vegna kvikmyndar því að hún er ýmist sögð hið mesta stórvirki eða pínleg á að horfa - ekkert þar á milli. Til marks um það þá fær myndin 50% af 100% skala vefritsins metacritic.com sem safnar saman viðhorfum helstu gagnrýnenda í heiminum og hjá sams konar vefriti sem er rottentomatoes.com er fengið út að 54 af hundraði séu dómar í jákvæðari kanntinum.

Roger Ebert er einn þeirra sem telja myndina stórvirki, segir hana í Chicago Sun-Times einu trúarlegu myndina sem hann hafi séð - að undanskilinni Mattheusarguðspjalli Pasolinis - sem taki á því sem gerðist í raun og veru: "Þetta er magnaðasta, mikilvægasta og langnákvæmasta túlkun á síðustu stundum Krists sem fest hefur verið á filmu." Ebert segir og Gibson "meistara frásagnarlistarinnar og að myndin sé hans meistaraverk". Todd McCarthy hjá Variety er nánast eins hrifinn og segir það deginum ljósara að hér sé á ferð mikilvægasta trúarmynd vorra daga. Hins vegar voru þeir gagnrýnendur margir sem ofbauð greinilega ofbeldið í myndinni og lýsti David Ansen henni þannig að Gibson væri allt að því að misnota áhorfendur og refsa þeim fyrir syndir þeirra, aðrir tala um að hún virki sem hin mesta píslarganga fyrir sjálfa áhorfendur og A.O. Scott hjá The New York Times hafnar henni og Gibson fyrir það að ná aldrei að gefa skýra mynd af því hver tilgangurinn með allri þessari blóðsúthellingu er - og við það hljóti Píslarsaga Krists að falla um sjálfa sig.

Þá er eftir að sjá hver dómur fjöldans verður sem mun best koma í ljós með sjálfri aðsókninni að myndinni.

skarpi@mbl.is