KARLMAÐUR óð inn í verslun 10-11 í Arnarbakka í Breiðholti í gærkvöldi og ógnaði starfsmanni. Hann hafði óverulega fjárhæð með sér á brott að sögn lögreglu en starfsmanninn sakaði ekki.
KARLMAÐUR óð inn í verslun 10-11 í Arnarbakka í Breiðholti í gærkvöldi og ógnaði starfsmanni. Hann hafði óverulega fjárhæð með sér á brott að sögn lögreglu en starfsmanninn sakaði ekki. Hann gat gefið greinargóða lýsingu á þjófnum og náði lögreglan honum 20 mínútum síðar. Var hann í annarlegu ástandi og verður yfirheyrður í dag.