Britney Spears virðist hafa farið yfir strikið að þessu sinni en myndbandið er gert af hinum sama og gerði "Dirty"-myndband Christinu Aguileru.
Britney Spears virðist hafa farið yfir strikið að þessu sinni en myndbandið er gert af hinum sama og gerði "Dirty"-myndband Christinu Aguileru.
BRITNEY Spears hefur verið gagnrýnd harðlega fyrir nýjasta myndband sitt við lagið "Everytime". Ástæðan er að í myndbandinu setur hún á svið sjálfsmorð.

BRITNEY Spears hefur verið gagnrýnd harðlega fyrir nýjasta myndband sitt við lagið "Everytime". Ástæðan er að í myndbandinu setur hún á svið sjálfsmorð. Þar er atriði með henni "látinni" í baðkari eftir að hafa tekið banvænan lyfjaskammt. Gagnrýnendur hennar óttast að ungir aðdáendur hennar sem eiga við vanda að etja geti hugsanlega leikið eftir þetta uppátæki hennar.

Nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að sjálfsmorð stjörnu geti haft 14 sinnum meiri áhrif á ungt fólk en sjálfsmorð "venjulegs" fólks og hafa foreldrasamtök í Bretlandi heimtað að hið "óábyrga" myndband fáist hvergi sýnt.

Í myndbandinu á Britney að hafa fyrirfarið sér eftir að hafa hætt með kærastanum en sagan segir að textinn í laginu sé saminn um sambandsslit þeirra Justins Timberlakes og sé um leið játning hennar, um að hún sjái eftir honum.