Frænkurnar Steinunn Lilja Logadóttir og Eva Lind Guðjónsdóttir. Steinunn fermist borgaralegri fermingu en Eva Lind er kaþólsk og er um þessar mundir að undirbúa sína fyrstu altarisgöngu.
Frænkurnar Steinunn Lilja Logadóttir og Eva Lind Guðjónsdóttir. Steinunn fermist borgaralegri fermingu en Eva Lind er kaþólsk og er um þessar mundir að undirbúa sína fyrstu altarisgöngu. — Barna & fjölskylduljósmyndir.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það er töluverð fjölbreytni í fjölskyldu Steinunnar Lilju Logadóttur sem nú fermist senn borgaralegri fermingu.

Það er töluverð fjölbreytni í fjölskyldu Steinunnar Lilju Logadóttur sem nú fermist senn borgaralegri fermingu. Systir hennar Freyja, sem er 17 ára, fermdist til ásatrúar, og var eina barnið við þá athöfn, Helga, móðir Steinunnar, fermdist alls ekki en faðir hennar fermdist til lúterskrar trúar. Níu ára frænka hennar, Eva Lind Guðjónsdóttir, er einmitt nú að taka sín fyrstu skref í átt að fermingu til kaþólskrar trúar og Sólbjört, 10 ára systir Steinunnar, er að hennar sögn mikið að hugsa um hvernig hún eigi að hafa þetta þegar hún kemst á fermingaraldur.

En hvers vegar skyldi Steinunn hafa ákveðið að fermast borgaralegri fermingu?

"Það á betur við mig en allt hitt sem ég átti kost á," segir Steinunn.

"Ég hef farið níu sinnum í fermingarfræðslu í Kvennaskólanum og lært þar mikið um samskipti, hvernig maður á að haga sér þegar maður er að stíga sín fyrstu skref sem fullorðin manneskja, mér finnst ég vita miklu meira um mannlega hegðun nú þegar. Þetta minnir á lífsleiknitíma í skólanum. Það kemur fólk og talar við okkur og fræðir okkur um hin ýmsu svið. Okkur hefur verið kynnt forvarnarstarf gegn vímuefnum, einnig hefur verið rætt um einelti, og síðast kom kona frá ÍTR og ræddi um þá ímynd sem okkur er gefin í fjölmiðlum, t.d. hvað varðar útlit og hvernig maður á að vera í vaxtarlagi og klæðnaði. Hún sagði okkur frá átröskun og ýmsu öðru sem er slæmt fordæmi, sýndi okkur myndir af módelum, poppstjörnum og skipti okkur svo í kynjahópa og stelpurnar áttu að teikna hinn fullkomna karlmann en strákarnir hina fullkomnu konu. Ég teiknaði Óla prik og pílur sem ég skrifaði við hvernig eiginleika maðurinn á að hafa. Þetta er allt mjög frjálslegt og það er einmitt það sem mér finnst svo skemmtilegt við það. Sumir vilja ekki kalla þetta fermingu en samt er þetta eins konar ferming þótt við lærum ekki boðorð og sálma. Ég verð fermd borgaralega í Háskólabíói þann 4. apríl nk. Ég hugsa að það verði veisla heima hjá mér á eftir.