— Morgunblaðið/Þorkell
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Tískan leikur mikið hlutverk í undirbúningi fermingarfatnaðar. Móeiður Júníusdóttir ræðir við Öldu Björgu Guðjónsdóttur, stílista og fatahönnuð, um fermingartískuna í ár, snið, liti og efni.

Það á við um fermingarbörn eins og aðra hópa. Við komum í öllum stærðum og gerðum en það vill vera svo að það sem er í boði fyrir fermingarbörn í búðunum er oftast í ákveðnum stærðum og úrvalið því oft lítið fyrir stráka og stelpur í yfirstærðum og mjög litlum stærðum.

Sumir hafa því tekið á það ráð að láta hanna og sauma á sig fermingarföt en ein af þeim sem hefur tekið að sér slík verkefni er Alda Björg Guðjónsdóttir, fatahönnuður og stílisti.

"Það er góður valmöguleiki að láta sauma á sig fermingarfötin og þá er hægt að koma með myndir úr tímaritum eða ganga út frá einhverju sem viðkomandi hefur litist vel á í verslunum," segir Alda.

Það er afar mikilvægt að líða vel á fermingardaginn og fatnaðurinn gegnir þar veigamiklu hlutverki. Það má segja að þarna sé einstaklingurinn að velja sér í fyrsta skipti föt til þess að koma fram í á opinberum vettvangi.

Áhrif frá sjötta áratugnum

Það sem einkennir straumana í fermingarfötum stúlkna í ár er nokkuð mikil litagleði, pastellitir og þá einkum og sér í lagi bleikur, sægrænn, gulur og ljósfjólublár, og svo er hvítur alltaf klassískur og ef til vill meira svart en áður að sögn Öldu.

"Áhrif níunda áratugarins eru á undanhaldi og nú eru það áhrif frá þriðja og sjötta áratug síðustu aldar sem eru áberandi. Gollur í pastellitum og stutt pils við, gjarnan með tjulli og mynstruð, eru vinsæl og má einnig sjá örla fyrir áhrifum frá skólabúningum og jafnvel tennisbúningum. Hnésíðir kjólar í anda sjötta áratugarins og þá gjarnan í ýmsum mynstrum koma sterkt inn og hæfa vel fermingardeginum."

Annars er fjölbreytnin mikil í verslunum í ár og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og greinilegt er að stelpur eru djarfari í fatavali en áður, það er að segja þær eru óhrædddari við að klæða sig óhefðbundið og fylgja sínum eigin stíl. Það er oft pressa á fermingarbörnin að þau séu svona og hinsegin en Alda telur að mikilvægt sé að að vera sjálfum sér samkvæmur í fatavali sem stuðli þá frekar að vellíðan á sjálfan fermingardaginn. Alda mælir með því að stelpur fari á milli búða og púsli sjálfar saman í stað þess að kaupa allt dressið á sama stað. Einnig er það hagkvæmissjónarmið að velja flíkur sem hægt sé að nota áfram í daglegu lífi en ekki aðeins opinberan fermingarkjól sem hangir svo bara inni í skáp engum til nytjar né gleði.

Toppurinn að vera í teinóttu

"Jakkaföt eru alltaf klassísk á strákana á fermingardaginn. En í dag þurfa foreldrar svo sannarlega ekki að þvinga þá til þess að klæðast þeim því jakkaföt eru mjög í tísku hjá strákum um þessar mundir og þeir sjá þarna gott tækifæri til þess að eignast góð föt sem hægt er að nota á árshátíðir seinna. Teinótt jakkaföt eru mjög vinsæl í dag svo og flauelsföt, brún, blá , grá og svört," segir Alda og bendir á að ekki sé nauðsynlegt að vera alltaf í skyrtu og með bindi við jakkafötin þótt vissulega sé það glæsilegt, það er einnig flott að vera í fallegum bolum undir jökkum. Varast ber að vera í mjög klunnalegum skóm, fallegast er að vera í penum skóm við jakkafötin.

Fermdist í skotapilsi

Elsti sonur Öldu, Ágúst Ari Þórisson, fermdist í fyrra og valdi sér afar óvenjuleg fermingarföt. Þegar Alda spurði Ágúst í hverju hann vildi fermast svaraði hann hiklaust að hann vildi fermast í skotapilsi en hann hafði séð leikarann Samuel L. Jackson klæðast einu slíku í kvikmyndinni 51st Street.

"Hann skar sig vissulega úr fjöldanum þar sem skotasokkarnir komu undan fermingarkyrtlinum og það var mikið um þetta rætt í skólanum en öllum fannst þetta flott og spurðu Ágúst hvort hann væri Skoti. Ætli hann gifti sig ekki í pilsinu næst, það var vel við vöxt," segir Alda að lokum og hlær.

Módel: Svandís, Orka, Aþena Ragna, Guðlaug, Aron Breki, Gunnar hjá Eskimo Models. Fermingarbörn í ár.