[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Í versluninni Sand í Kringlunni er að finna fjölbreytt úrval af fötum á "fermingarmömmur".

Í versluninni Sand í Kringlunni er að finna fjölbreytt úrval af fötum á "fermingarmömmur".

"Við erum með mikið framboð af fallegum fötum í öllum stærðum fyrir konur frá þrítugu, fatnað sem er einkar vel til þess fallinn að skarta við tækifæri eins og t.d. fermingar," sagði Hulda Rós Hákonardóttir sem rekur verslunina Sand.

"Sem dæmi erum við með fallegar dragtir og kjóla, boli og toppa, fínar peysur sem henta vel við þessi hátíðlegu tilefni en einnig erum við með fatnað sem gengur við öll tækifæri.

Fötin sem við erum með eru framleidd í Danmörku og hönnuð af dönskum hjónum sem leggja áherslu á að fylgja tísku en hafa að leiðarljósi að fatnaðurinn sé þægilegur og vandaður."