Hvítt, bleikt, doppótt og teinótt er meðal þess sem nú er vinsælt.
Hvítt, bleikt, doppótt og teinótt er meðal þess sem nú er vinsælt. — Morgunblaðið/Jim Smart
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
"TÍSKAN í fermingarfötum stúlkna í ár er breytileiki, efnin eru hvít og doppótt og hvít og svo kemur bleiki liturinn inn mjög sterkur núna," sagði Lilja Hrönn Hauksdóttir hjá Cosmo. "Pífupils og toppar eru vinsæll klæðnaður.

"TÍSKAN í fermingarfötum stúlkna í ár er breytileiki, efnin eru hvít og doppótt og hvít og svo kemur bleiki liturinn inn mjög sterkur núna," sagði Lilja Hrönn Hauksdóttir hjá Cosmo.

"Pífupils og toppar eru vinsæll klæðnaður. Fatnaðurinn er upp til hópa stílhreinn og fallegur.Við erum bæði með föt fyrir fermingarstúlkur, og einnig fyrir konur sem eiga börn sem verið er að ferma. Þær kaupa einfaldar og glæsilegar buxnadragtir, teinótt efni eru mjög vinsæl núna, "kryddaðar" með toppum í ótal litum og ýmsum litskrúðugum fylgihlutum.