Fermingarstúlka frá fyrstu tíð fermingarmyndanna.
Fermingarstúlka frá fyrstu tíð fermingarmyndanna.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fermingarmyndir, uppstilltar á ljósmyndastofum eins og enn tíðkast, komu til sögunnar fyrir um 100 árum.

Fermingarmyndir, uppstilltar á ljósmyndastofum eins og enn tíðkast, komu til sögunnar fyrir um 100 árum.

"Þær verða þó ekki almennar fyrr en seinna," sagði Inga Lára Baldvinsdóttir starfsmaður Þjóðminjasafns sem rannsakað hefur íslenskar ljósmyndir og gefið út bók um þær rannsóknir.

"Það er varla fyrr en eftir 1930 að slíkar fermingarmyndir verða almennar. Við eigum mynd af fermingarbarnahópi með presti frá því líklega um 1870 en fólkið á myndinni er óþekkt.

Elstu fermingarmyndir sem ég hef séð eru teknar hjá Ljósmyndastofu Péturs Brynjólfssonar, konunglegs hirðljósmyndara. Það sést á klæðnaði fyrirsætanna á myndunum að þarna er um fermingarmyndir að ræða. Á þessum gömlu fermingarmyndum er stúlkurnar í hvítum kjólum og stundum með hanska. Sálmabækurnar koma ekki inn í myndina fyrr en töluvert síðar. Piltarnir eru prúðbúnir á hefðbundinn máta og það gerir erfiðara að ákveða fyrir víst hvort um fermingarmynd er að ræða.

Um 1930 taka flestar ljósmyndastofur fermingarmyndir og þá voru komnar margar ljósmyndastofur í Reykjavík og víða um land. Við eigum nokkuð skemmtilegar myndir af fermingarathöfn og fermingarveislu árið 1910. Það eru myndir sem áhugaljósmyndari sem hét Vigfús Sigurðsson tók austur á Valþjófsstað í Fljótsdal í fermingu Jóns Þórarinssonar, bróður Þórarins skólastjóra á Eiðum.

Eftir 1950 eru teknar fermingarmyndir á stofu af nánast öllum fermingarbörnum landsins og hefur verið svo síðan. Eftir 1970 tóku sumir þá stefnu að taka ekki formlegar fermingarmyndir af börnum sínum heldur bara augnabliksmyndir heima.