— Morgunblaðið/Þorkell
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hárgreiðsla og förðun er stórt mál hjá margri fermingarstúlkunni og strákunum er heldur ekki sama hvernig hárið er. Móeiður Júníusdóttir ræddi við Hrefnu Hlín Sveinbjörnsdóttur hjá hárgreiðslustofunni Mojo um tískustrauma á þessum sviðum.

"Það er rómantík í loftinu," segir Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir hjá hárgreiðslustofunni Mojo. Hún segir greinileg áhrif frá Hringadróttinssögu í hártísku stúlkna um þessar mundir.

"Hárið á að vera fallega bylgjað og þá stórir liðir og sléttujárnin sívinsælu hafa vikið fyrir bylgjujárnunum, í það minnsta um stundarsakir. Einnig eru túperingar í anda sjötta áratugarins mikið notaðar til þess að lyfta hárinu. Flestar stelpur eru að safna hári fram að fermingu og því er um að gera að leyfa síddinni að njóta sín og bylgja það og brjóta jafnvel upp með litlum fléttum, þær eru alltaf klassískar.

Minna um flóknar fermingarhárgreiðslur

Það er miklu minna um flóknar fermingarhárgreiðslur en áður var og heldur hefur dregið úr slöngulokkaflóðinu. Þó eru alltaf einhverjir sem vilja leggja svolítið í greiðsluna og þá er gott að hafa í huga þá einföldu reglu að því flóknari sem hárgreiðslan er því minna skal nota af hárskrauti, en hins vegar ef hárgreiðslan er einföld að brjóta endilega upp með skrauti, til dæmis laufblöðum eða ferskum blómum, gjarnan í sama lit og fötin. Ef hár er millisítt er upplagt að taka hárið frá andlitinu, setja í það bylgjur og taka jafnvel upp.

Strákar eru margir með nokkuð sítt hár í dag, klippingar eru flestar þannig að þær eiga að virka þannig að hárið sé úr sér vaxið en samt með ákveðna línu. Til þess að fríska upp á hárið á strákunum er því upplagt að blása það og setja í hárefni. Fermingargreiðslur kosta á bilinu 4.500 til 7.500 krónur, allt eftir því hversu flóknar þær eru.

Fyrir þær stelpur sem eru byrjaðar að mála sig er mikilvægt að passa að nota ekki of mikinn farða á fermingardaginn, segir Þórunn Sif Garðarsdóttir eða Tóta Sif hjá Mac-snyrtivörum í Debenhams í Smáralind. Ef notaður er farði er fallegast að förðunin sé eins náttúruleg og hægt er. Það má til dæmis slétta örlítið út húðina og setja endilega á sig bjartan og fallegan kinnalit og einn sætan augnskugga yfir augun, ef til vill blýant en þó ekki of sterkan. Augnskuggarnir eru í ljósum litum núna, fjólubláir, sægrænir, fölbleikir og silfraðir. Maskarar eru brúnir og náttúrulegir og svo er að setja punktinn yfir i-ið og skella á sig glossi, gjarnan gegnsæju eða með bleikum tóni.

Hárgreiðsla: Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir hjá Mojo. Förðun: Sólveig hjá MAC í Debenhams, Smáralind. MAC-snyrtivörur.