Bárður Sigurgeirsson húðsjúkdómalæknir varar unglinga við notkun ljósabekkja.
Bárður Sigurgeirsson húðsjúkdómalæknir varar unglinga við notkun ljósabekkja.
Ljósatímar í ljósabekkjum eru eitt af því sem sumar ungar stúlkur og konur hafa mikið sótt fyrir hátíðleg tækifæri, m.a. fermingar.

Ljósatímar í ljósabekkjum eru eitt af því sem sumar ungar stúlkur og konur hafa mikið sótt fyrir hátíðleg tækifæri, m.a. fermingar. En það eru ekki allir sáttir við þá útlitsfegrun sem í hinum brúna lit er talin fólgin, einkum eru læknar áhyggjufullir vegna heilsufarshættu sem slík ljós hafa í för með sér og þykir brúni liturinn á stundum dýrkeyptur.

Bárður Sigurgeirsson húðsjúkdómalæknir vitnar til ályktunar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar í þessu sambandi.

"Sú stofnun hefur varað eindregið við ljósabekkjanotkun," segir Bárður.

"Af því tilefni þykir ástæða til að vara foreldra og börn við þeirri hættu sem getur hlotist af notkun ljósabekkja. Sú hætta felst í aukinni tíðni húðkrabbameins. Það er varað við því alls staðar í heiminum að sólargeislar og ljósabekkir séu miklu hættulegri en menn töldu áður, einkum hvað ungt fólk varðar.

Algengi sortuæxla hefur þrefaldast hjá konum á undanförum þremur árum árum og nú er svo komið að sortuæxli er algengasta krabbameinið meðal ungra kvenna.

Það eru einkum konur sem hafa sótt í ljósabekki en hættan á húðkrabbameini er auðvitað fyrir hendi líka hjá karlmönnum sem sækja í sólböð og ljósabekki.

Hér hafa verið gerðar rannsóknir sem sýna að Íslendingar eiga líklega heimsmet í ljósabekkjanotkun og þar eru konur í miklum meirihluta. Fyrir 25 árum var sjaldgæft að ungar konur fengju sortuæxli en nú er það algengt - við erum að sjá ungar konur látast um þessum sjúkdómi.

Vitað er að það tekur nokkur ár frá því að húðin verður fyrir skaða þar til meinið tekur sig upp, þess vegna er ályktað að grunnurinn sé lagður snemma með ljósabekkjanotkun, jafnvel á fermingaraldri.

Af þessum orsökum viljum við koma þeim ábendingum til fermingarbarna og foreldra þeirra að notkun ljósabekkja getur haft hættu í för með sér, hún getur orsakað krabbamein innan fárra ára."