Gunnhildur Ævarsdóttir, Hugi Leifsson og Þorvarður Örn Einarsson eru á fermingaraldri og nemendur í 8. bekk Kársnesskóla.
Gunnhildur Ævarsdóttir, Hugi Leifsson og Þorvarður Örn Einarsson eru á fermingaraldri og nemendur í 8. bekk Kársnesskóla. — Morgunblaðið/Jim Smart
GUNNHILDUR, Hugi og Þorvarður eru nemendur í 8. bekk Kársnesskóla og fara þrjár mismunandi leiðir á fermingarárinu. Fyrst verður fyrir svörum Gunnhildur Ævarsdóttir, sem kveðst ekki ætla að fermast.

GUNNHILDUR, Hugi og Þorvarður eru nemendur í 8. bekk Kársnesskóla og fara þrjár mismunandi leiðir á fermingarárinu.

Fyrst verður fyrir svörum Gunnhildur Ævarsdóttir, sem kveðst ekki ætla að fermast. "Ég er alin upp við guðstrú, en er búin að missa hana. Ástæðuna veit ég ekki. Ég byrjaði að efast mikið síðastliðið sumar. Auk þess trúi ég ekki á ferminguna sem slíka og hef aldrei séð tilganginn með henni, svo ég hefði hvort eð er ekki fermst," segir hún.

Þess í stað ætlar hún til Bretlands, til London og Jersey nánar tiltekið, í menningarferð. Í ferðinni verða auk Gunnhildar, foreldrar hennar og systur og kærasti næstelstu systur hennar.

"Ég mátti ráða hvert við færum. Í London er mikið af söfnum og ég ætla að reyna að komast á British Museum og Museum of Natural History. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á Fornegyptum og valdi að fara til London þegar ég sá safnaþátt um British Museum í sjónvarpinu," segir hún.

Spurð um hugðarefni sín kveðst hún hafa áhuga á dulspeki, göldrum og spádómum. "Og öllu sem tengist Netinu, fornleifum og þess háttar."

Engin veisluhöld eru á döfinni á næstunni, segir Gunnhildur að síðustu. "Ég hélt upp á 14 ára afmælið mitt 2. mars síðastliðinn, það var það eina sem ég gerði fyrir fjölskylduna."

Kjúklingasalat og Kanarí

Þorvarður Örn Einarsson hyggst fermast í Kópavogskirkju hinn 28. mars næstkomandi. Að athöfninni lokinni verður fjölskyldunni boðið upp á veitingar, meðal annars kalt borð, og kveðst Þorvarður hafa valið sérstaklega kjúklingasalat, sem móðir hans býr til og honum þykir gott. Um páskana fer fjölskyldan síðan til útlanda, það er til Tenerife á Kanaríeyjum. "Ég fer með foreldrum mínum, bróður og systur, og síðan kemur frænka mín og foreldrar hennar," segir hann.

Hvað fermingarfötin varðar, var ekki búið að kaupa þau, þegar viðtalið fór fram, en Þorvarður kvaðst ætla að spá í það innan tíðar. Einnig sagðist hann hlakka nokkuð til athafnarinnar. "Já, svona frekar, aðallega til veislunnar á eftir og svona."

Hvað gjafirnar varðar, sagðist hann ekki hafa pantað neitt sérstakt. "Nei, eiginlega ekki, bara pening eða eitthvað."

Aðspurður segir Þorvarður sjónvarpstæki og græjur algengar óskir meðal fermingarbarna.

Ekki kveðst hann hafa þurft að velta því mikið fyrir sér, hvort hann ætti að fermast eða ekki. "Nei, ég var búinn að ákveða að ég ætlaði að fermast í kirkju. Mér finnst það réttast. Flestallir sem ég veit um ætla að fermast í kirkju," segir hann loks.

Ekki jafnstór skuldbinding

Hugi Leifsson hefur hug á borgaralegri fermingu og fer athöfnin fram í Háskólabíói hinn 4. apríl. "Mér fannst það bara eitthvað einfaldara og leist betur á þetta. Maður þarf ekki að mæta í fullt af messum og læra helling af bænum. Þetta er ekki jafnstór skuldbinding."

Síðar um daginn verður veisla. "Sennilega bara hérna heima," segir hann um staðsetninguna. "Svona kaffidæmi. Kökur og svoleiðis," bætir hann við.

Kaffiveisluna valdi hann sjálfur og þá sérstaklega döðlutertu með banönum, rjóma og súkkulaði.

"Svo held ég ekkert meira upp á þetta," segir hann líka.

Hvað fötin varðar, kvað Hugi hugsanlegt að búið væri að kaupa þau. "Þá eru þau sennilega bara inni í skáp."

Gjöfum hafði hann hins vegar velt fyrir sér og þá rafmagnsgítar, magnara og myndbandsupptökuvél.

Heldurðu að þú fáir þetta?

"Sennilega rafmagnsgítarinn og magnarann en ég er nú ekki viss með myndbandsupptökuvélina." |hke@mbl.is