"Leikur hans var fullkomlega ójafn, skeytingarlaus og án allrar stefnu. Hann hafði svo litla þekkingu á fingrasetningu að hann hentist til og frá um hljómborðið."
"Leikur hans var fullkomlega ójafn, skeytingarlaus og án allrar stefnu. Hann hafði svo litla þekkingu á fingrasetningu að hann hentist til og frá um hljómborðið."
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Franz Liszt var ef til vill fyrsti píanóleikarinn sem þótti vera virtúós. Hann var gjarnan kallaður Örninn við hljóðfærið og hefur tilkomumikið nef hans án efa haft þar sitt að segja. Hér er saga hans rakin og fjallað um hinn mikla og fyllta hljóm sem hann bjó yfir.

Það voru oftast tónskáldin sjálf sem fluttu verk sín fyrr á tímum og fengu þá stundum sæmdarheitið virtúósar. Þetta hefur mikið breyst og nú fást tónskáldin við tónsköpun en hljóðfæraleikarar og söngvarar flytja verk þeirra og túlka. Þessi þróun hefur átt sér stað á löngum tíma. Þegar tónskáld flytur verk sín er það beintengt við sköpunarverk sitt og táknmál tónlistarinnar þ.e. nóturnar eru ekki dulkóðaðar eins og hljóðfæraleikarar hafa stundum á tilfinningunni þegar þeir fást við tónverk hvort sem það er gamalt eða nýtt. Í viðleitni sinni til þess að nálgast innihald tónverksins verður flytjandinn að tileinka sér hvað vakti fyrir tónskáldinu, geta í eyðurnar og láta það síðan streyma í gegnum sína eigin skynjun eða flæði. Ekki skal fullyrt neitt um það hvort er vænlegra til árangurs, en víst er að nálgunin hlýtur að verða ólík. Sá sem eyðir stórum hluta tíma síns í að ná góðum tökum á hljóðfæri sínu hefur það forskot að vera mjög hæfur hljóðfæraleikari og þess vegna ætti túlkun verksins ekki að líða fyrir tæknilegar takmarkanir. Það er svo nálgun flytjandans og auðmýkt gagnvart verkinu sem ræður því hvort túlkunin verður sannfærandi. Ef til vill hafa flytjendur ekki mismunandi stíl heldur eru þeir einungis mislangt frá verkinu sjálfu. Víst er að flytjendur bera ekki allir jafnmikla virðingu fyrir tónverkunum sem þeir flytja og falla stundum í þá gryfju að baða sig í þeim til að sýna tæknilega yfirburði sína á hljóðfærið. Slíkt getur vissulega verið mjög áhrifaríkt og nánast ofurmannlegt þótt eitt og sér skilji það ef til vill lítið eftir nema hrifningu augnabliksins. Sá hljóðfæraleikari er lánsamur sem lærir að heyra eigin rödd og gera hana samhljóma verkinu.

Goðsögnin um Liszt og snilli hans

Franz Liszt var ef til vill fyrsti píanóleikarinn sem þótti vera virtúós. Hann var gjarnan kallaður Örninn við hljóðfærið og hefur tilkomumikið nef hans án efa haft þar sitt að segja. Hann var mikið glæsimenni og margir þekkja sögurnar af því þegar konur féllu í yfirlið þegar þær hlustuðu á hann spila og geymdu jafnvel ómerkilegustu hluti innanklæða sem meistarinn hafði snert. Carl Czerny, nemandi Beethovens, heyrði Franz Liszt leika á píanó árið 1819, þá átta ára, og lýsir því svo: "Hann var fölur og viðkvæmnislegur. Þegar hann lék hallaðist hann eins og drukkinn í stólnum og ég hélt á hverri stundu að hann myndi detta í gólfið! Leikur hans var fullkomlega ójafn, skeytingarlaus og án allrar stefnu. Hann hafði svo litla þekkingu á fingrasetningu að hann hentist til og frá um hljómborðið. Samt sem áður var ég nær orðlaus af undrun yfir þeim gríðarlegu hæfileikum sem honum voru gefnir. Ég lét hann lesa nokkur verk af blaði og það gerði hann af tilfinningunni einni saman. Þá varð mér ljóst að hann hafði til að bera óvenjulega hæfileika og var efni í mikinn píanista. Ég vissi af reynslunni að þeim sem er gefin snilligáfa, sem er þroska þeirra æðri, hættir til að vanrækja hana." Carl Czerny tók Liszt ungan í læri og sagði síðar: "Það var afar mikilvægt að byggja upp og styrkja tækni hans svo vel að engin hætta yrði á því að hann freistaðist til að falla aftur í gryfju fyrri mistaka. Hann lærði verk á stuttum tíma og varð afburðagóður í því að lesa af blaði (prima vista). Hann var fær um að leika mjög erfið verk þannig að þau hljómuðu eins og hann hefði æft þau í lengri tíma." Það hefur án efa verið mikið lán fyrir Franz Liszt að komast til kennara sem kom auga á gáfur hans, en um leið kunni að aga hann og þroska. Hæfileikar Liszts til þess að leika verk sem hann hafði aldrei séð voru einstakir. Sagan af því þegar hann las píanókonsert Griegs af blaði er vel þekkt, en söguna af því þegar þeir hittust í fyrsta sinn þekkja færri. Grieg fór á fund Liszts og hafði með sér eina af fiðlusónötum sínum. Um fund þeirra sagði hann: "yður ber að hafa í huga að Liszt hafði aldrei hvorki heyrt né séð sónötuna. Þar að auki var verkið með fiðlurödd til viðbótar við píanóröddina. Og hvað gerði Liszt? Hann lék allar raddirnar bæði fiðlu og píanó og þar að auki með fylltum hljóm og sannfærandi. Hann lék bókstaflega á allt hljóðfærið samtímis og missti ekki úr nótu, og hvílík spilamennska! Allt með reisn, snilli og undraverðum skilningi. Ég gat ekki annað en hlegið, hlegið eins og barn".

Velgengnin sóttist eftir honum

Í hugum margra var Liszt andhetja og rómantísk goðsögn. Til voru píanistar og svo var það Franz Liszt. Hann var einstakur og umdeildur. "Að vera frábrugðinn öllum öðrum," sagði Hallé eitt sinn um hann "að láta sér fátt um finnast hvernig aðrir lifa lífinu, virðist vera takmark hans og tilgangur." Aðeins Wagner fékk álíka mikla athygli og Liszt og þótt hann væri aðeins tveimur árum yngri átti Liszt síðar eftir að verða tengdafaðir hans þegar Wagner gekk að eiga dóttur hans Cosimu. Allt sem Liszt tók sér fyrir hendur var fréttnæmt. Allir kepptust við að skrifa um hann og hann gaf þeim vissulega góðan efnivið. "Liszt sóttist aldrei eftir velgengni," sagði Berlioz einhverju sinni, "velgengnin sóttist eftir honum!" Fyrir daga Franz Liszt léku píanóleikarar ekki heilar efnisskrár á tónleikum án þátttöku annarra tónlistarmanna. Hann varð því fyrstur allra píanista til að halda einleikstónleika. Efnisskrá hans var fjölbreytt. Auk eigin verka flutti hann verk samtímamanna sinna, Chopins, Schumanns og Mendelssohns auk verka Beethovens, Schuberts og Bachs. Einnig var Liszt víðfrægur fyrir umritanir sínar sem þóttu afar glæsilegar. Verk hans gáfu píanótónsmíðum og píanótækni nýja vídd og þóttu þau vera mun meira krefjandi en áður hafði þekkst. Það var ekkert sem Liszt gat ekki gert á píanóið. "Í samanburði við hann," sagði Anton Rubinstein "erum við öll börn". Hann hafði sömu þýðingu fyrir píanótækni og píanóleik og Paganini hafði haft fyrir fiðluleik. Það var einmitt þegar Liszt heyrði Paganini leika á fiðlu, þá sextán ára, að hann strengdi þess heit að verða jafnfær á píanóið og Paganini var á fiðluna. Saint-Saens skrifaði árið 1893, skömmu eftir dauða Liszts: "Áhrif hans á komandi kynslóðir píanóleikara eru óviðjafnanleg. Ég get aðeins líkt þeim við áhrif Victors Hugo á franska tungu. Þær miklu framfarir sem urðu í tónmyndun og hljómgæðum fyrir hans tilstilli eru stórbrotnar og eiga eftir að hafa áhrif um ókomna tíð."

Miklvægi tónmyndunar á píanó

Það er víða mikið skrifað um þann mikla og fyllta hljóm sem Liszt bjó yfir og ef til vill eru það einmitt gæði tónsins sem píanóleikarar laða fram úr hljóðfærinu sem skilur þá að hvern frá öðrum. Til að mynda var Edwin Fischer víðfrægur fyrir sinn breiða syngjandi píanótón, Gilels þótti hafa einstaklega ljóðrænan tón og Gieseking var þekktur fyrir óvenjulega glitrandi tón sem hafði mikið "klang". Árni Kristjánsson hafði einn fegursta tón á hljóðfærið sem ég hef heyrt og það var töfrum líkast hvaða blæbrigði honum tókst að laða fram með leik sínum. Saint-Saens sagði um Liszt: "minningin um píanóleik hans er mér eilíf huggun og gerir mér það bærilegt að vera ekki ungur lengur". Án efa hefur Liszt haft mikil áhrif á mótun píanóleikara og víst er að mikilvægi tónmyndunar á píanó verður seint ofmetið. Það verður ekki hjá því komist að gefa henni gaum þegar leikið er á strengjahljóðfæri, þar sem hver nóta er mynduð svo að segja frá grunni. Bæði þarf strengjaleikarinn að huga að því nótan sé rétt staðsett á gripbrettinu til að hún sé hrein og svo þarf hann að huga náið að samhæfingu strengs, boga og vibratós til þess að gefa tóninum blæbrigði og fegurð. Á píanóinu er búið að stilla strengina og fyrir framan píanóleikarann eru margir tugir hvítra og svartra lykla. Hver þeirra er lykill að ákveðinni nótu sem heyrist um leið og slegið er. Nóturnar eru því réttar manni upp í hendurnar, svo að segja, en þar með er ekki öll sagan sögð. Þar sem auðveldara er að fá nótuna til að hljóma á píanóinu en á strengjahljóðfærinu er mögulegt að fara þá leiðina að láta hjá líða að hlusta með gagnrýni á tóninn. Það hefur alltaf verið eðlilegra í mínum huga að hugsa um píanóið sem strengjahljóðfæri en ekki ásláttarhljóðfæri. Það hefur áhrif á nálgunina og ef höfð er í huga tónfegurð og tónmyndun strengjahljóðfæra hefur það sitt að segja í baráttunni við að láta píanóið hljóma fallega. Það er erfitt að lýsa því nákvæmlega hvað hefur áhrif á þann tón sem píanóleikarinn skapar. Að heyra fyrir sér ákveðinn hljóm áður en nótan er sleginn vegur þar þungt. Hljómurinn verður þannig fyrst til í ímyndunaraflinu sem hefur síðan áhrif á það hvernig höndin nálgast nótuna. Hraði hennar og þungi skipta máli og einnig það hvort slegið er beint niður eða í átt að strengjunum með dálítilli hnoðhreyfingu sem gerir tóninn mýkri og meira syngjandi. Þessi tegund innri hlustunar og samstillingar hljóms og handar er grunnurinn að tónmyndun píanóleikarans. Það hefur mikið að segja að píanónemendur umberi ekki grófan tón hjá sjálfum sér, sem er ekki samboðin tónlistinni, til þess að þeir geti tileinkað sér fallegan tón á hljóðfærið. Á sama hátt og engir tveir tónlistarmenn túlka sama verkið nákvæmlega eins eru engir tveir píanóleikarar með nákvæmlega sama "tóninn", þótt erfitt geti verið að setja fingurinn á hvað það er sem veldur því. Fram að tímum Franz Liszts hafði sú píanótækni ráðið ríkjum sem krafðist þess að píanóleikarinn sæti hreyfingarlaus við hljóðfærið með olnboga þétt upp að líkamanum. Aðeins nauðsynlegar hreyfingar framhandleggs voru leyfðar og handarbakið átti að vera alveg kyrrt. Arthur Schnabel lýsir píanótíma úr bernsku sinni þannig: "settur var silfurpeningur á handarbak mitt á meðan ég lék eina Czerny-æfingu og ef mér tókst að halda honum þar fékk ég að eiga hann. Nú hef ég breytt handstillingu minni svo mikið að ég ætti í mestu vandræðum með að leika örfáar nótur án þess að glopra peningnum niður. Ég hef ekki trú á því að leika með hreyfingarlausri hendi en líklega hafa byrjendur gott af því." Kennari hans síðar var Leschetizky og hann var honum sammála: "gefið eftir og látið handlegginn ráða ferðinni, líkt og knapinn sem fylgir hreyfingum reiðskjóta síns".

Liszt krafðist virðingar sem listamaður og þótti stundum ósvífinn í þeirri viðleitni sinni. Einhverju sinni á tónleikaferð í St. Pétursborg hitti hann hershöfðingja sem spurði hann hvort hann hefði ekki einhvern tímann verið í hernum. Liszt svaraði: "Nei, herra minn, hefur þú einhvern tímann leikið á píanó?" Það má velta því fyrir sér hvort færni Franz Liszts hafi haft þá yfirburði sem sagan segir og hvernig píanisti hann þætti á okkar tímum. Það væri vissulega ómetanlegt að geta hlustað á leik hans á upptöku, en hann lést skömmu áður en sú tækni kom til sögunnar. Til er upptaka á píanórúllu, þar sem Brahms leikur nokkra takta úr Ungverskum dansi sínum og lengi hafa verið á kreiki sögusagnir um að einhvers staðar sé til rúlla með leik Frans Liszts. Líklegast eru þær sögusagnir byggðar á óskhyggju því að upptakan hefur aldrei komið fram. Liszt verður því ávallt sveipaður dulúð og goðsögnin um yfirburði hans og snilli aldrei hrakin.

Höfundur er tónlistarmaður.