Reikult er rótlaust þangið, rekst það um víðan sjá, straumar og votir vindar velkja því til og frá. Fuglar flugu yfir hafið með fögnuði og vængjagný, - hurfu út í himinblámann hratt eins og vindlétt ský.
Reikult er rótlaust þangið,
rekst það um víðan sjá,
straumar og votir vindar
velkja því til og frá.
Fuglar flugu yfir hafið
með fögnuði og vængjagný,
- hurfu út í himinblámann
hratt eins og vindlétt ský.
Þangið, sem horfði á hópinn,
var hnipið allan þann dag. -
Bylgjan, sem bar það uppi,
var blóðug um sólarlag.
Jóhann Sigurjónsson (1880-1919) varð þekktur víða um Evrópu fyrir skáldverk sín sem voru í anda nýrómantíkur.