EKKI er enn vitað hverjir stóðu að hryðjuverkunum í Madríd en vissulega berast böndin fyrst og fremst að basknesku aðskilnaðar- og hryðjuverkasamtökunum ETA. Ekki er þó talið útilokað, að íslömsk hreyfing, Abu Hafs al-Masri, að sögn nátengd al-Qaeda, hafi verið þar að verki en sérfræðingar í hryðjuverkum benda á, að hingað til hafi yfirlýsingar þessara samtaka, ef þau eru þá til í raun og veru, ekki verið mjög trúverðugar.
Í yfirlýsingu al-Masri, sem send var arabíska dagblaðinu Al-Quds Al-Arabi í London, segir, að árásirnar í Madríd hafi verið gerðar til að hefna stuðnings Spánarstjórnar við Bandaríkjastjórn. Sagt er, að yfirvofandi sé árás á Bandaríkin og hreyfingin segist hafa staðið fyrir árásinni á frímúrarastúku í Istanbul fyrir nokkrum dögum og fellt þar þrjá menn.
Eignuðu sér rafmagnsleysið
Yfirvöld í Tyrklandi segjast ekki leggja trúnað á yfirlýsinguna og benda á, að í árásinni á frímúrarastúkuna hafi fallið tveir menn, ekki þrír, og þar af annar sprengjumannanna. Þá er einnig minnt á, að al-Masri lýsti yfir ábyrgð sinni á rafmagnsleysinu í Bandaríkjunum á síðasta ári en ástæðan fyrir því átti ekkert skylt við hryðjuverk. Bandarískir leyniþjónustumenn segjast heldur ekki þekkja þess nein dæmi, að al-Qaeda hafi lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkum samdægurs eins og gerðist í fyrradag.Suma grunar einfaldlega, að al-Masri sé ekki til sem hreyfing. Eins líklegt sé, að um sé að ræða einn einstakling með faxtæki og tölvu.