Ofsahraði | Sextán ökumenn voru kærðir á fimmtudag fyrir hin ýmsu brot á umferðarlögum í umdæmi lögreglunnar í Keflavík. Meðal annars voru sex ökumenn kærðir fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut.

Ofsahraði | Sextán ökumenn voru kærðir á fimmtudag fyrir hin ýmsu brot á umferðarlögum í umdæmi lögreglunnar í Keflavík.

Meðal annars voru sex ökumenn kærðir fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast fór var á 154 km þar sem hámarkshraði er 90 km. Einn ökumaður var kærður fyrir hraðakstur á Grindavíkurvegi.

Sex ökumenn voru kærðir fyrir að vera ekki með öryggisbelti við aksturinn og einn fyrir að tala í farsíma við aksturinn án þess að nota handfrjálsan búnað. Einn ökumaður var kærður fyrir að aka hægra megin fram úr bifreið á Reykjanesbraut.