Suðrænn léttleiki ræður ríkjum í Glæstum tímum sem Fúría, leikfélag Kvennó, setur upp í Loftkastalanum.
Suðrænn léttleiki ræður ríkjum í Glæstum tímum sem Fúría, leikfélag Kvennó, setur upp í Loftkastalanum. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
LEIKLISTARLÍFIÐ í framhaldsskólum landsins er með miklum blóma þessa dagana og fjöldinn allur af spennandi sýningum í boði, bæði leikrit og söngleikir.

LEIKLISTARLÍFIÐ í framhaldsskólum landsins er með miklum blóma þessa dagana og fjöldinn allur af spennandi sýningum í boði, bæði leikrit og söngleikir. Morgunblaðið tók púlsinn á leikstjórum og leikurum í sýningum fjögurra framhaldsskóla sem frumsýndar voru á síðustu dögum.

Súkkulaðitöffarar og sólbrúnar ljóskur eru í sviðsljósinu í söngleiknum Hey þú sem Fjölbrautaskóli Suðurlands frumsýndi í gær en verkið er byggt á tónlist sunnlensku hljómsveitarinnar Skítamórals. "Við ákváðum að gera eitthvað frumlegt og erum að gera grín að ímynd okkar Selfyssinga. Fólk sér fyrir sér ljósabekkjabrúna súkkulaðigæja á sportbílum og þannig eru flestar persónurnar í sýningunni," segir Margrét Guðrúnardóttir en hún leikur Báru Bessadóttur í sýningunni, sólbrúna ljósku.

Söngleikurinn gerist í söngvakeppninni "Hey þú" og fáum við að fylgjast með keppendum baksviðs þar sem ýmislegt gerist. Strákarnir í Skítamóral hafa hjálpað krökkunum mikið að sögn Maríu. "Þeir hafa til dæmis lánað okkur búninga og reynst okkur mjög vel á ýmsan hátt."

- Á þessi súkkulaðigæjaímynd, sem Selfoss hefur, sér einhverja stoð í raunveruleikanum?

"Kannski átti það við 97-98 þegar Skítamórall voru sem frægastir en þeir komu náttúrlega frá Selfossi, jú, þá held ég að hafi verið mikið um svona töffara hérna. En í dag er þetta ekkert öðruvísi hér en annars staðar," segir Margrét og hlær.

Þetta er stærsta og dýrasta uppsetning sem nemendafélag skólans hefur lagt í til þessa að sögn Margrétar en alls koma um 60 manns að sýningunni þar af 40 leikarar. Felix Bergsson samdi verkið en leikstjóri er María Reyndal. Margrét segir að hópurinn sé þéttur og æfingar hafi gengið vel. "Reyndar er allt á haus hjá okkur núna, svona rétt fyrir frumsýningu, en þetta verður mjög gaman. Við erum líka með svo frábæran leikstjóra."

Glæstir tímar

Næstan ber að nefna Kvennaskólann en nemendur frumsýndu verkið Glæstir tímar í Loftkastalanum 10. mars. Verkið er eftir Berg Þór Ingólfsson sem einnig er leikstjóri en það er byggt á spænsku kvikmyndinni Belle Epoque eftir Fernando Trueba. Segir þar af Friðriki, ungum Reykvíkingi, sem hefur verið handtekinn fyrir að sletta málningu á ráðherra í mótmælaskyni. Hann flýr upp í sveitir landsins og lendir þar á heimili Magnúsar nokkurs sem á fjórar gullfallegar systur.

"Þetta er æðisleg saga, falleg og skemmtileg, og mér hefur alltaf þótt hún henta vel sem leikrit. Hún er líka mannmörg og aðalhlutverkin skiptast á milli nokkurra leikara," segir Bergur og bætir við að Belle Epoque sé ein af hans uppáhaldsmyndum. Hann segir vinnuna með krökkunum hafa gengið mjög vel en undirbúningur fyrir sýninguna hófst í haust. "Ég er auðvitað með mjög hæfileikaríka krakka, þetta hefur gengið mjög ljúflega og einkennst af þeirri léttu stemningu sem er í verkinu. Vonandi kemur sá léttleiki fram í sýningunni.

Fyrir áhorfendur er sýningin vonandi æfing í að njóta lífsins og láta sér þykja vænt um hvert annað því þrátt fyrir allt þá lifum við glæsta tíma," segir Bergur.

Vilja fræga kærasta

Hörundsárir og hefnigjarnir fyrrverandi kærastar eru aðalpersónurnar í leikritinu Ýkt kominn yfir þig sem Borgarholtsskóli sýnir núna en líklega verður síðasta sýningin í dag, laugardag.

Verkið er eftir ungan Breta, Mark Ravenhill, en leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir. Segir þar af fjórum 14 ára stelpum sem ákveða allar að hætta með kærustunum sínum til að reyna að krækja sér í fræga kærasta.

Sýningin hefur gengið vel og aðsókn verið góð, að sögn Eyþórs Ingasonar, formanns leikfélagsins Agons og leikara í sýningunni. "Leikstjórinn og við í leikhópnum völdum leikritið í sameiningu en það er mjög skemmtilegt og lýsir vel daglegu lífi unglinga."

Hann segir að vinnan við sýninguna sé búin að vera rosalega skemmtileg og bætir við að hann geti vel hugsað sér að halda áfram í leiklistinni og verða jafnvel leikari.

Bannað að sjá myndina

Herranótt, leikfélag Menntaskólans í Reykjavík, frumsýndi leikritið Lodd í Tjarnarbíói í gær og verður það sýnt þar næstu tvær vikurnar. Verkið er byggt á kvikmyndinni The Imposters eftir Stanley Tucci og fjallar um tvo atvinnulausa leikara sem verða fyrir því óláni að móðga heimsfræga leikkonu sem sigar á þá lögreglunni. "Við ræddum heillengi hvaða leikrit við ættum að taka en duttum loks niður á þessa skemmtilegu hugmynd þar sem við sáum möguleika á hraðri og skondinni sýningu," segir Agnar Jón Egilsson leikstjóri.

Hann bendir á að leikritið sé þó mjög ólíkt myndinni, hún hafi einungis verið notuð sem grunnur. "Við bjuggum til leikstíl út frá spunavinnu og breyttum söguþræðinum mikið. Reyndar hafa ekkert margir krakkanna séð myndina því ég bannaði þeim það." Hann segir æfingar hafa gengið vonum framar. "Krakkarnir eru mjög hæfileikaríkir og mikil orka í þeim."

bryndis@mbl.is