Kári Ólfjörð Nývarðsson fæddist í Garði í Ólafsfirði 6. október 1940. Hann lést á heimili sínu Hlíðarvegi 59 í Ólafsfirði 6. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Nývarð Ólfjörð Jónsson bóndi, f. 30. september 1910, d. 8. október 1994, og eiginkona hans, Kristín Sigurjónsdóttir, f. 5. september 1906, d. 12. ágúst 1990. Systkini Kára eru: Hreinn Bernharðsson (sammæðra), f. 5. júní 1930 og Guðfinna Þórhildur Ólfjörð Nývarðsdóttir, f. 5. október 1950.

Kári kvæntist 14. september 1963 Sigrúnu Ingólfsdóttur, f. 14. september 1946. Foreldrar hennar voru hjónin Ingólfur Baldvinsson, f. 20. maí 1920, d. 29. september 1996, og Hildigunnur Ásgeirsdóttir, f. 23. apríl 1927, d. 20. september 1989. Börn Kára og Sigrúnar eru: 1) Sigmar Ólfjörð, f. 1. júlí 1996, d. 29. júní 1972. 2) Kristín Ólfjörð, f. 22. janúar 1969, gift Ásgrími Pálmasyni, f. 20. september 1963. Synir þeirra eru Kári Ólfjörð, f. 17. maí 1989 og Sæmundur Ólfjörð, f. 26. ágúst 1994. 3) Sigmar Ólfjörð, f. 10. júlí 1972. Sambýliskona hans er Heiðrún Sjöfn, f. 17. desember 1981. 4) Inga Hilda Ólfjörð, f. 1. desember 1980. Sambýlismaður hennar er Daníel Páll Víkingsson, f. 15. febrúar 1980 og eiga þau dótturina Sigrúnu Ólfjörð, f. 13. apríl 2003.

Kári lauk prófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni árið 1960 og kennaraprófi frá handavinnukennaradeild Kennarskóla Íslands árið 1965. Kennsla var hans aðalævistarf. Hann var kennari við skólana í Ólafsfirði í nær fjóra áratugi til haustsins 2002, þegar hann hætti sem fastráðinn kennari. Frá þeim tíma sinnti hann stundakennslu við grunnskólann í Ólafsfirði. Á sumrin vann hann við ýmislegt, fyrst og fremst vélsmíði, en einnig vann hann í síldarverksmiðju, við byggingarvinnu og var á sjó.

Útför Kára fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30.

Elsku pabbi, tengdapabbi og afi, ekki grunaði okkur þegar við sátum í sumarbústaðnum fyrir nokkrum dögum að skipuleggja allt það sem við ætluðum að gera í sumar, að leiðir okkar væru að skilja. Þar varst þú í essinu þínu, ákveðinn í að stækka girðinguna svo koma mætti fyrir fleiri trjám og runnum, mæla fyrir áfellum á þakinu og fleira sem átti að laga. Það var virkilega létt yfir þér þar sem þú sást fram á mikla vinnu og nóg að gera, enda snillingur að finna verkefni til að vinna. Við sáum þig fyrir okkur með málband og hallamálið við gróðursetningu trjáa og runna, því ekki máttu þau halla eða vera misjafnlega langt á milli, það varð að vera pottþétt þar sem millimetrinn skipti máli. Það var eins og annað sem þú tókst þér fyrir hendur, unnið af alúð og nákvæmni.

Mikill dýravinur varstu alla tíð og voru hundar í sérstöku dálæti. Hafðir þú oft gaman af að kenna þeim ýmsar kúnstir og þú varst mjög ánægður með sjálfan þig þegar þú kenndir Kát að betla mat með sérstöku ýlfri, snjótittlingar og aðrir fuglar munu sakna þín á hörðum vetri enda gafstu þeim sex sinnum á dag, bílskúrinn er líka orðinn eins og fóðurgeymsla hjá bændum, því vegna mildra vetra undanfarið hafa hlaðist upp brigðir, alltaf keyptir þú sama magn á hverju hausti.

Það sýndi sig að þínar sterkustu hliðar voru ætíð umhyggjusemi, gjafmildi og endalaus þolinmæði - og þess nutum við líka ríkulega, aldrei gastu bón neitað og ef þú fórst, þó ekki væri nema til Akureyrar, komstu alltaf færandi hendi til baka, alltaf gafstu þér tíma til að hjálpa nafna þínum í heimanáminu og talaði hann oft um hvað gott væri að læra hjá afa sínum. Það er því stórt skarð höggvið í fjölskyldu okkar þar sem ekki er hægt að leita til þín lengur þegar eitthvað bjátar á, og nú er enginn afi til að segja sögur eða klára að smíða kofann úr öllu efninu sem þú komst með í sumar.

Þín er sárt saknað en minningin um allar góðu stundirnar sem við áttum saman munu aldrei gleymast eða deyja.

Kristín Ólfjörð, Ásgrímur, Kári og Sæmundur.

Elsku pabbi.

Ég get ekki enn trúað því að þegar við sáumst síðast á Akureyri á föstudaginn, þá hafi það verið í síðasta skiptið sem ég myndi hitta þig. Þú varst svo glaður og hress en svo ertu bara tekinn frá mér eins og hendi sé veifað.

Þú varst svo mikill fjölskyldufaðir og hugsaðir fyrir öllu, hvort sem það var að laga húsið ykkar mömmu eða kaupa bætur á reiðhjóladekk til að afastrákarnir þínir gætu notað þegar þá vantaði. Og svo var það litla afastelpan þín sem fékk ekki að njóta umhyggju þinnar nema í stuttan tíma, en alltaf var gaman að sjá ykkur saman, því hún hermdi eftir öllu sem þú gerðir enda varð fyrsta orðið hennar "afa".

En elsku pabbi, það er svo margt sem mig langar að segja þér, en því miður kem ég orðunum ekki frá mér. En ég vil láta fylgja nokkur orð sem ég gaf þér í jólagjöf fyrir stuttu, og þó að þau séu ekki eftir mig þá eru þau beint frá hjarta mínu.

Ég elska þig, pabbi, fyrir alla þá hluti sem

þú gerir.Þú kemur mér til að hlæja þegar ég er

hnuggin.Þú getur losað erfiðustu hnúta sem til eru,

þó svo litla að þeir ekki sjáist.

Þú veist ástæðuna fyrir hér um bil öllu.

Eins og af hverju það rignir og af hverju

býflugur stinga.Eins og af hverju þotur valda hljóð-

drunum.

Þú ert nánasti vinur sem ég hef átt.

Þú deilir með mér tímaunum tvennum,

bæði góðu og slæmu.Ég elska þig, pabbi, fyrir alla þá hluti sem

þú gerir.Mest af öllu, ég elska þig, pabbi, fyrir að

vera þú.(Höfundur ókunnur.)

Elsku pabbi minn, nú verð ég að kveðja þig þó að ég óski aftur og aftur að þú værir kominn til mín til að leggja höndina á öxl mína og segja að þetta verði allt í lagi.

Þín,

Inga Hilda.

Vorið er í nánd. Langþráðir geislar sólarinnar eru farnir að teygja sig yfir fjallahringinn í kringum fjörðinn okkar. Birtan vex með degi hverjum og boðar komu vorsins með vaknandi jarðargróður, angan úr grasi og ilm í lofti.

Senn verður vetrardrunganum, kuldanum og myrkrinu svipt í burt. Vorið heldur innreið sína með vaknandi fugla- og dýralíf til sjávar og sveita, bjartar nætur og blíða daga.

Hjá mér hefur nú skyndilega dregið dökkt ský fyrir vorkomuna.

Eini bróðir minn, hann Kári, er dáinn.

Þótt dauðinn sé hið eina sem öllum er sameiginlegt og enginn fær umflúið, er hann oft á ferð þegar enginn á hans von, magnþrunginn og miskunnarlaus. Svo var í þetta sinn.

Við bræðurnir ólumst upp í sveit og þótt aldursmunurinn væri of mikill til þess að við ættum saman barnaleiki tengdu störfin í sveitinni okkur nánum bræðraböndum, sem aldrei slöknuðu né rofnuðu.

Áhrifin frá uppvextinum í sveitinni einkenndu Kára alla tíð. Hann var mikill náttúruunnandi og einstakur dýravinur.

Það var frábært að fylgjast með honum, þegar hann var að gæla við hundana, sem dætur hans eiga, og sjá hvernig þeir fögnuðu honum, þegar þeir urðu á vegi hans. Atlot þeirra og augu tjáðu meiri væntumþykju en sögð verða með orðum. Ég held, að einungis miklir mannkostamenn nái slíku sambandi við mállaus dýrin.

Góð umgengni um landið og náttúruna skiptu hann miklu máli og stundum var hann ósáttur, þegar hann sá jarðrask eftir verktaka og bændur við ána, þar sem hann og fjölskylda hans áttu sumarbústað.

Kári var mikill nákvæmnis- og smekkmaður og lagði mikla áherslu á vandvirkni og öguð vinnubrögð. Í starfi sínu sem kennari var hann farsæll.

Margir nemenda hans urðu góðir vinir hans og félagar.

Þar sem hann var laghentur og bóngóður leituðu margir til hans með verkefni, sem þeir treystu sér ekki til að vinna sjálfir. Þau verkefni leysti hann með glöðu geði.

Kári var safnari í eðli sínu, þótt hann hafi ekki stundað reglulega söfnun á neinu sérstöku. Þegar hann var smápolli í sveitinni fann hann oft og hirti ýmsa hluti, sem öllum öðrum fannst vera einskis nýtir, en voru dýrgripir í hans augum. Þetta voru gjarnan gömul verkfæri eða hlutar úr þeim, sem hafði verið fleygt.

Alla tíð var sú hugsun rík hjá honum að nýta hlutina sem best og ekki ætti að fleygja nokkrum hlut, sem gæti hugsanlega orðið að gagni síðar.

Kári var mikill fjölskyldumaður. Hann var óþreytandi við að búa í haginn fyrir fjölskyldu sína og létta henni lífið. Hann var ætíð til staðar, þegar hans var þörf, úrræðagóður, fórnfús og traustur.

Þessara eiginlega hans nutu fleiri en hans nánustu. Um árabil var hann virkur í starfi björgunarsveitarinnar Tinds og mörg dagsverk vann hann sem sjálfboðaliði við byggingu á félagshúsi sveitarinnar.

Í einkalífinu var Kári hamingjusamur. Í upphafi kennsluferils síns kynntist hann Sigrúnu Ingólfsdóttur, sem var í fyrsta nemendahópnum hans.

Þau felldu hugi saman og giftu sig á sautján ára afmælisdeginum hennar.

Hjónaband þeirra var mjög farsælt og mér finnst að þá fjóra áratugi, sem þau áttu saman sem hjón hafi þau orðið æ samrýndari. Þótt flesta daga væri birta yfir lífi þeirra var það ekki alltaf dans á rósum. Frumburður þeirra, Sigmar Ólfjörð, lést af slysförum á 6. aldursári. Það sár, sem þá myndaðist í brjósti bróður míns, greri aldrei. En hann bar harm sinn í hljóði, því að honum var ekki tamt að bera tilfinningar sínar á torg.

Í sorginni vegna sonarmissisins styrktu þau Sigrún hvort annað og efldu samband sitt.

Ég bið þess og trúi því að það nána samband nái út yfir gröf og dauða og megi verða til þess að styrkja Sigrúnu og aðra ástvini bróður míns gegn þeim mikla harmi sem þau eru nú slegin.

Bróðir minn góður. Vertu guði falinn og hafðu þökk fyrir allt og allt frá fyrstu tíð til lokadags.

Hreinn Bernharðsson.

Mamma gengur til stúlkunnar sinnar, tekur höndum um höfuð hennar. Stúlkan hennar lítur upp og áður en henni eru færð sorgartíðindin, horfir hún upp á andlit móður sinnar og segir ,,mamma, hver er dáinn?"

Hann Kári bróðir minn og frændi þinn er dáinn.

Enn einu sinni erum við minnt á að lífið er fallvalt og enginn ræður sínum næturstað. Við erum líka minnt á hve börnin geta verið næm á umhverfi sitt.

Mágur minn Kári ólst upp í Garði í Ólafsfirði, sveitabarn, stolt foreldra sinna.

Hann var vel af Guði gerður, glæsilegur á velli, greindur vel, hugprúður og hugrakkur, sumir sögðu jafnvel að hann kynni ekki að hræðast. Hann ólst upp við almenn sveitastörf tók fljótt til höndunum við að aðstoða pabba og mömmu við hin ýmsu störf búreksturins. Og það fór fljótt að muna um drenginn sem var að vaxa úr grasi. Hann var hraustur og þolinn, allt lék í höndum hans, gamanyrði á vör.

En hann átti til að ganga fram af pabba sem kallaði þó ekki allt ömmu sína. Eitt sinn var verið að smala kindunum niður Garðsdalinn heim að bæ. Kári fer á undan fljótur upp á fótinn. Hann er norðan við ána þegar hann sér skjáturnar taka á rás í óvænta stefnu. Yfir ána í talsverðri hæð hafði verið lagt rör nokkra metra langt. Kári gerir sér lítið fyrir og hleypur yfir ána eftir rörinu sem sveiflast undir fótum hans, fyrir skjáturnar og bóndinn faðir hans horfði stjarfur á aðfarirnar.

Við gerð Múlavegar sýndi Kári aftur að ekki fóru allir í spor hans. Vegagerðinni var nánast að ljúka beggja megin frá en haft eitt sem nefnt er Ófærugjá var Hadda og fleirum sem að vegagerðinni unnu erfitt og seinunnið. Ólafsfirðingar biðu óþreyjufullir eftir að nota sinn veg og eitt sinn er aðdrætti þurfti til heimilisins í Garði fór Kári með föður sínum út í Múla. Bíll kom innan með varninginn. Kári hljóp eftir skriðu Ófærugjár og sótti aðföngin og kom brosandi með þau til baka. Þeir sem horfðu á ferðir hans leist ekki meira en svo á þetta ferðalag.

Ólafsfjörður er þetta góða sambland af landbúnaði og sjósókn líkt og gerist víða um land og minnir undirritaðan að því leyti til á hina fögru Kirkjubæi í sinni heimabyggð sem nú hvíla undir hrauni.

Kári kynntist sjósókn og stóð sig vel þar eins og við öll önnur störf sem hann tók sér fyrir hendur.

Kári gat því hvort sem er orðið góður bóndi eða sjómaður. En eins og eldri bróðir valdi hann sér kennarastarfið. Aflaði sér menntunar í Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni og einnig í Kennaraskólanum í Reykjavík. Hóf síðan störf við Grunnskóla Ólafsfjarðar. Þetta nám hentaði Kára vel. Hann var ljómi ungra manna, hreystin uppmáluð, knár í íþróttum og allt lék í höndum hans hvort sem var á tré eða járn. Aðalnámsgreinar sem hann kenndi voru líkamsrækt og handavinna, auk fleiri greina.

Kári stofnar til fjölskyldu í Ólafsfirði. Eins og Bergþóra sagði forðum getur eftirlifandi eiginkona hans Sigrún Ingólfsdóttir sagt ,,ung var ég gefin". Á fimmtánda ári hennar stofna þau til tryggðarbanda sem staðið hafa síðan. Þau hafa alla tíð verið einstaklega samhent hjón og staðið þétt saman í sorg og gleði.

Fyrir stuttu þurfti ég að bregða mér í Ólafsfjörð, varð litið út um glugga og leit þá Kára í síðasta sinni á göngutúr með Sigrúnu sína sér við hlið og þau eins og nýtrúlofuð.

Kára og Sigrúnu varð fjögurra barna auðið. Þrjú þeirra eru vaxin úr grasi. Barnabörnin orðin þrjú og hafa verið ömmu og afa til ómældrar gleði.

Mikill harmur var kveðinn að heimili þeirra árið 1972 þegar þau missa ungan dreng, Sigmar, aðeins rétt tæplega sex ára gamlan, augastein foreldra sinna. Ungi drengurinn fer út að hjóla og dettur. Innvortis blæðing veldur því að dagar hans eru taldir.

Það tók Kára langan tíma að jafna sig eftir hið sviplega fráfall sonar síns. Hann bar ekki sorg sína á torg. Var að eðlisfari dulur, gat jafnvel verið feiminn. En öllum leið vel í návist hans. Stutt var í glettni og skemmtilegar sögur og stutt í glampann í augum hans á góðum stundum.

Á uppvaxtarárum Kára í Garði las faðir hans oft á síðkvöldum upphátt úr bókum. Þetta hefur sjálfsagt átt sinn þátt í því að Kári hneigðist fljótt til lesturs bóka, var mikill bókaormur í þess orðs bestu merkingu.

Góðs vinar er saknað.

Það verða mikil viðbrigði að koma í Ólafsfjörð og vita hann ekki lengur til staðar. Horfinn á braut til sonar sem sárt var saknað, yndislegra foreldra og þeirra sem á undan eru gengnir.

Við Didda mín sendum þér, elsku Sigrún, Kristínu, Sigmari og Ingu Hildu, tengdadóttur, tengdasonum og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Far þú í friði,

friður Guðs þig blessi,

hafðu þökk fyrir allt og allt.

(V. Briem.)

Óli Þór Ástvaldar.

Með Kára Ólfjörð er genginn einn litríkasti og tryggasti kennari við Barnaskóla Ólafsfjarðar. Í rúm 40 ár var Kári einn af aðalkennurum skólans og vann hér mikið og óeigingjarnt starf. Kári tók fljótlega þá stefnu í lífinu að gerast kennari og því starfi gegndi hann nánast óslitið hér í Ólafsfirði frá tvítugsaldri og þar til hann lést. Þeir eru því ófáir Ólafsfirðingarnir sem Kári hefur kennt, ýmist íþróttir, smíðar eða bóklegar greinar. Kári var íþrótta- og handavinnukennari að mennt. Sundið var hans hjartans mál og lagði hann metnað sinn í að koma sem flestum og helst öllum á flot og var mjög góður sundmaður sjálfur.

Kári var ekki fyrir það að trana sér fram og var nánast hlédrægur á stundum, en gat þó verið gráglettinn þegar hann vildi það við hafa. Hann var alla tíð samviskusamur og áreiðanlegur jafnt í námi sem starfi og hafði metnað fyrir því að skila verkum sínum vel unnum og var margt til lista lagt. Liðagigtin lagðist þungt á Kára og varð til þess að hann varð að hætta að kenna íþróttir fyrr en ella og síðan smíðarnar einnig. Hann virtist ætíð sakna þeirra tíma eftir að hann kom eingöngu í bóklegu greinarnar. Kári var ótrúlega harður af sér að mæta í vinnu fljótt eftir þær aðgerðir sem hann þurfti að fara í út af liðagigtinni og var aldrei að barma sér þó svo að honum hafi oft á tíðum liðið illa. Alltaf var hann mættur fyrstur manna á morgnana og búinn að kveikja á "gömlu gufunni" og glugga í fræðin.

Áhrifa hans á yngri kynslóð þessa bæjarfélags mun gæta um mörg ókomin ár. Það er að mörgu leyti erfitt að meta jafn huglægt starf og kennslu, ekki til neinn algildur mælikvarði, heldur verður hver og einn að meta fyrir sjálfan sig. Grunnþættir kennslunnar, að miðla þekkingu og hvetja nemendur til dáða voru Kára auðvelt viðfangsefni. Nemendur hans virtu hann og fóru að fyrirmælum hans. "Hann kann að láta okkur hlýða", sögðu þeir þegar við hin undruðumst hvers vegna þeir væru miklu stilltari í hans tímum en okkar. Honum var gefinn þessi hæfileiki að gera sig skiljanlegan í örstuttu máli með raddblæ sem var ótvíræður.

Við minnumst sérstaklega daganna fyrir jólin þegar Kári var með Grýlu og Leppalúða og þrettán rauðklædda jólasveina í halarófu á ferð um ganga skólans að fara í heimsókn í yngri bekkina. Hópinn var hann búinn að þrautþjálfa í að flytja jólakvæði Jóhannesar úr Kötlum og stjórnaði þeim af miklum skörugleik. "Hver æfir okkur nú fyrir næstu jól?" spurðu nemendur eftir lát Kára.

Kára verður sárt saknað í skólanum og minnumst við hans sem góðs vinar og félaga.

Við sendum Sigrúnu, Kristínu, Simma, Ingu Hildu og öllum aðstandendum Kára Ólfjörð innilegar samúðarkveðjur.

Samstarfsfólk í

skólunum í Ólafsfirði.