SÍMINN og Golfsamband Íslands hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára. Samningurinn felur í sér fjölbreytt samstarf félaganna.

SÍMINN og Golfsamband Íslands hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára. Samningurinn felur í sér fjölbreytt samstarf félaganna.

Síminn og GSÍ munu í sameiningu kanna möguleika þess að auðvelda aðgengi kylfinga að ýmsum þáttum golfleiksins með aðstoð upplýsingatækninnar, t.d. WAP og GPRS. Í því sambandi er horft til þátta eins og skráningar rástíma á golfvöllum landsins, sem og skráningar í golfmót samkvæmt mótaskrá tölvukerfis Golfsambandsins www.golf.is.