VEGAGERÐIN hefur gefið út fyrsta kortið í ár um færð á hálendisvegum. Verða slík kort gefin út vikulega fram eftir sumri.

VEGAGERÐIN hefur gefið út fyrsta kortið í ár um færð á hálendisvegum. Verða slík kort gefin út vikulega fram eftir sumri.

Allir helstu hálendisvegir landsins eru ófærir en fært er þó að Hveravöllum að norðan og jeppafært er í Landmannalaugar og þá einnig aðeins að norðan. Aðrar leiðir úr Laugum eru ófærar. Þá er enn ófært um Öxarfjarðarheiði og beggja vegna Jökulsár á Fjöllum.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er varla unnt að segja fyrir um hvenær búast megi við að hálendisvegirnir verði almennt opnaðir, það ráðist mest af hitafari og úrkomu næstu vikur.