— Ljósmynd/KJB
Eskifjörður | Ungmenni í unglingadeildinni Særúnu á Eskifirði gengu um helgina milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar, til fjársöfnunar fyrir nýjum búnaði handa björgunarsveitinni. Unga fólkið gekk í heilan sólarhring, frá kl.

Eskifjörður | Ungmenni í unglingadeildinni Særúnu á Eskifirði gengu um helgina milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar, til fjársöfnunar fyrir nýjum búnaði handa björgunarsveitinni.

Unga fólkið gekk í heilan sólarhring, frá kl. 13 á laugardag og fram á sunnudag, en um 15 km eru á milli bæjanna. Þrír til fjórir gengu í einu og hver hópur í tvær klukkustundir í senn.

Gangan gekk mjög vel, enda vel skipulögð. Veður var hins vegar ekki upp á sitt besta, en krakkarnir létu það ekki á sig fá.