NOTENDUM mbl.is gefst nú kostur á að panta fríar smáauglýsingar sem birtast á smáauglýsingavef mbl.is.

NOTENDUM mbl.is gefst nú kostur á að panta fríar smáauglýsingar sem birtast á smáauglýsingavef mbl.is. Hver auglýsing birtist í sjö daga en að þeim tíma loknum er auglýsandanum sendur tölvupóstur þar sem honum er boðið að framlengja birtingu um aðra sjö daga eða bóka nýja auglýsingu.

Margir nýttu sér þennan möguleika og voru yfir 500 smáauglýsingar pantaðar í gær.

Á vefnum má nú finna um 1.400 auglýsingar í 72 flokkum þar sem boðið er til kaups margt áhugaverðra hluta. Hægt er að leita eftir leitarorðum og/eða velja flokka til að finna það sem leitað er að.

Hægt er að panta auglýsingu með því að smella á hnappa sem staðsettir eru efst í hægra horni á forsíðu mbl.is, á Viðskiptavef, Íþróttavef og vefnum Fólkið. Þá er hægt að tengjast smáauglýsingavefnum og smella á hnappinn Panta auglýsingu.