Helga E. Jónsdóttir
Helga E. Jónsdóttir
LEIKLISTARSAMBAND Íslands hefur ráðið Helgu E. Jónsdóttur sem framkvæmdastjóra Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna.

LEIKLISTARSAMBAND Íslands hefur ráðið Helgu E. Jónsdóttur sem framkvæmdastjóra Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna.

Helga útskrifaðist úr leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur 1968 og hefur hún starfað sem leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleikhúsinu og mörgum af sjálfstæðu leikhúsunum. Helga hefur leikið mikinn fjölda hlutverka, bæði stór og smá. Frá 1991 hefur Helga verið sjálfstætt starfandi leikari og leikstjóri. Leikstjórnarverkefnin eru orðin 20 talsins. Hún útskrifaðist frá félagsvísindadeild HÍ 1993 eftir nám í hagnýtri fjölmiðlun. Helga var umsjónarmaður Listaklúbbs Leikhúskjallarans frá 1999-2003.

Gríman verður næst afhent við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu 16. júní nk.