RANNSÓKN á voðaskoti sem dró 12 ára dreng til bana á Selfossi hinn 15. mars er enn til rannsóknar hjá sýslumanninum á Selfossi. Tæknirannsókn vegna málsins er lokið en beðið er krufningarskýrslu.

RANNSÓKN á voðaskoti sem dró 12 ára dreng til bana á Selfossi hinn 15. mars er enn til rannsóknar hjá sýslumanninum á Selfossi. Tæknirannsókn vegna málsins er lokið en beðið er krufningarskýrslu. Í umrætt skipti hljóp skot úr skammbyssu í höfuð drengsins þegar hann og félagi hans voru að fikta með vopnið.

Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður segir þátt eiganda skammbyssunnar til skoðunar og verði fljótlega tekin ákvörðun um hvernig meta skuli þátt hans í málinu.