Colin Farrell þykir töffari mikill.
Colin Farrell þykir töffari mikill. — Reuters
ÍRSKI leikarinn Colin Farrell hefur verið kosinn sá óþægi karlmaður sem konur dreymir helst um að fara út með.

ÍRSKI leikarinn Colin Farrell hefur verið kosinn sá óþægi karlmaður sem konur dreymir helst um að fara út með. Farrell hefur getið sér orð fyrir villt líferni, mikla drykkju og kvennafar en hann hefur verið í tygjum við stjörnur á borð við Britney Spears, Demi Moore, Angelinu Jolie og Naomi Campell.

Svo virðist sem konur fái samt ekki nóg af töfrum Írans því hann var efstur á listanum yfir stjörnur sem eru frægar fyrir villt líferni, en Mars súkkulaðifyrirtækið lét geta könnunina. Ólátabelgurinn Robbie Williams var næstur á listanum og í þriðja sæti kappaksturshetjan Eddie Irvine. Lee Ryan úr Blue og Pharrell Williams úr N.E.R.D. komu næstir og síðan Liam Gallagher, David Beckham og Russell Crowe þar á eftir. Gömlu brýnin Jack Nicholson og Mick Jagger ráku lestina í 9.-10. sæti.

Það vekur athygli að David Beckham sé nefndur og virðist sem nýlegar fregnir af framhjáhaldi hans með spænskri aðstoðarkonu sinni hafi nú þegar breytt ímynd fótboltakappans sem þar til fyrir stuttu hafði það orðspor að vera tryggur eiginmaður sem helgaði sig fjölskyldunni.