Við skoðun vélanna er öll áhersla lögð á það að klára verkið á réttum tíma, þar sem tapaðir dagar eru dýrir í flugi. Því er nauðsynlegt að allar ferðir séu liprar og snöggar. Fjárfesti Valdimar í forláta sendilshjólum til afnota í húsið og hafa þau reynst
Við skoðun vélanna er öll áhersla lögð á það að klára verkið á réttum tíma, þar sem tapaðir dagar eru dýrir í flugi. Því er nauðsynlegt að allar ferðir séu liprar og snöggar. Fjárfesti Valdimar í forláta sendilshjólum til afnota í húsið og hafa þau reynst — Morgunblaðið/Eggert
Keflavíkurflugvöllur | "Það hefurverið mjög mikið að gera hjá okkur og við vorum að bæta við hjá okkur þrjátíu starfsmönnum tímabundið í viðhaldsvinnu," segir Valdimar Sæmundsson, framkvæmdastjóri Tækniþjónustu Flugleiða, en fyrirtækið hefur...

Keflavíkurflugvöllur | "Það hefurverið mjög mikið að gera hjá okkur og við vorum að bæta við hjá okkur þrjátíu starfsmönnum tímabundið í viðhaldsvinnu," segir Valdimar Sæmundsson, framkvæmdastjóri Tækniþjónustu Flugleiða, en fyrirtækið hefur haft gnótt verkefna undanfarið ár. Nú starfa um 185 fastir starfsmenn hjá fyrirtækinu, þar af eru um 120 flugvirkjar.

"Við erum búnir að gera nú í vetur fjórtán stórskoðanir á 757-vélum, sem er mun meira en verið hefur," segir Valdimar. "Það athyglisverða er að við höfum verið með tvær vélar í skoðun í einu, sem er nýtt. Það má segja að við séum með tvær framleiðslulínur, en þannig er ástandið búið að vera í þrjá mánuði. Stórskoðanir eru mjög misjafnar að umfangi og geta tekið allt frá fimm dögum upp í mánuð."

Agað vinnuumhverfi

Viðhald á flugvélum fer fram eftir mjög öguðum aðferðum. Hvert einasta verk sem snýr að skoðun og viðhaldi flugvéla er skjalað í því skyni að koma í veg fyrir skekkjur eða villur, enda er bæði gríðarlegt verðmæti og ekki síður hundruð mannslífa í húfi. "Verðmæti eins hreyfils í 757-vél er um sjö hundruð milljónir króna. Það að setja hreyfilinn á verkstæði kostar um þrjú hundruð og fimmtíu milljónir," segir Valdimar. "Því er gríðarleg pappírsvinna í kringum hverja skoðun. Ef eitthvað finnst að þá er það skráð, auk verklýsingar á því hvernig gert var við það og samkvæmt hvaða heimild. Þetta er geysilega agað umhverfi og stundum líkt við lyfjaframleiðslu, svo mikilvæg er skjölunin."

Höfuðáhersla er lögð á öryggi flugvéla og fyrir hvert lykilkerfi eru a.m.k. tvö aukakerfi. "Það er til dæmis þrefalt rafkerfi í vélunum og tvær til þrjár talstöðvar. Þótt einhver hlutur bili á það ekki að geta haft nein gríðarleg áhrif."

Árið í fyrra var fyrsta starfsár Tækniþjónustunnar sem sérstakt fyrirtæki og sá reynslutími hefur að sögn Valdimars gengið afar vel. Verkefnum hefur fjölgað til muna hjá Tækniþjónustunni og hefur hún tekið að sér fjölda verkefna utan þjónustunnar við Flugleiðir. "Flugleiðasamstæðan hefur verið að stækka og við önnumst núna viðhald á fimmtán 757-vélum fyrir Flugleiðasamstæðuna og tveimur 767. Við önnumst auk þess allt viðhald fyrir Air Finland, en það er með þrjár 757," segir Valdimar og telur upp fjölmörg önnur flugfélög sem njóta þjónustu fyrirtækisins. "Það er skýr stefna hjá okkur að við þjónum öllum sem hér þurfa þjónustu. Þau viðbótarverkefni sem við höfum fengið í vetur hafa skaffað okkur að minnsta kosti tvö hundruð milljónir fram yfir rekstraráætlun, sem hljóðar í ár upp á 2,6 milljarða, þetta er ágæt búbót."

Traust verkefnastaða

Valdimar segir verkefnastöðuna næstu tvö árin mjög trausta og gefa góðar horfur fyrir framtíðina. Skýringuna á þessum vexti í verkefnum telur hann meðal annars þá að flugvirkjar og verkfræðingar Tækniþjónustunnar séu sérhæfðir í viðhaldi bæði 757- og 767-véla. Smærri flugfélög, sem ekki hafa efni á eigin viðhaldsstöðvum, leiti að þriðja aðila til viðhalds á vélum og Tækniþjónustan hafi t.d. haft samband við finnska flugfélagið að fyrra bragði og boðið þjónustu sína. "Við höfum mikla reynslu af rekstri 757-flugvéla, eigum allt sem til þarf, varahluti, þjálfað fólk og ekki síst þau kerfi sem þarf til að halda utan um þetta," segir Valdimar og bætir við að það séu ekki bara skoðanir sem Tækniþjónustan selji, heldur einnig varahlutaþjónusta, eftirlit, skipulagning og verkfræðiþjónusta. "Auk þess erum við með viðhaldsvakt sem er mönnuð allan sólarhringinn og getur stjórnað viðhaldi flugvéla um allan heim. Minni flugfélög kaupa mikið af þessari þjónustu af öðrum og við teljum okkur vera sterka á þessu sviði. Það er mjög mikil reynsla saman komin hér," segir Valdimar og bætir því við að lokum að hann telji að aldrei hafi verið framleidd flugvél og hreyflasamstæða sem er eins áreiðanleg í rekstri og Boeing 757.