Depp og geðsjúklingurinn Turturro.
Depp og geðsjúklingurinn Turturro.
Sálfræðitryllirinn Secret Window er byggður á sögu Stephen King. Þar er rithöfundur eltur af geðsjúklingi sem segir hann hafi stolið sögunni sinni og breytt endinum. Rithöfundurinn þarf að sanna sitt mál, en gengur treglega.

Ef Johnny Depp er að leika aðalhlutverkið í Stephen King mynd, þá annaðhvort er myndin sérlega áhugaverð eða Johnny Depp er að verða sérlega venjulegur. Vonum það fyrra.

Leikstjórinn David Koepp er alla vega áhugaverður. Hann er í raun handritshöfundur sem verður leikstjóri, og skrif hans eru ekki af verra taginu. Hann á heiðurinn af Carlito's Way, Jurassic Park, Death Becomes Her, Spider-Man, Panic Room og fleiri fínum myndum. Hann leikstýrði síðan ágætis myndum, Stir of Echoes og The Trigger Effect sem hann einnig samdi handritið að. Nú er það Leyndi glugginn sem vonandi er góður.