Sigurvegarinn í myndatextakeppninni þessa vikuna er Ragnar Eiríksson, með tillöguna "Sjitt, Halldór er að hringja. Ísólfur, svaraðu og segðu að ég hafi gleymt símanum hjá þér.
Sigurvegarinn í myndatextakeppninni þessa vikuna er Ragnar Eiríksson, með tillöguna "Sjitt, Halldór er að hringja. Ísólfur, svaraðu og segðu að ég hafi gleymt símanum hjá þér." Einnig voru verðlaunaðar uppástungur Ingibjargar Marteinsdóttur: "GSM er eins og lítið lamb að vori" og Eggerts Sólbergs Jónssonar: "Síminn er svartur, eins og hún Kolla í Fljótum". Þau hljóta að launum mynddiska með Kill Bill Vol. 2 og boli merkta Fólkinu. Myndin í næstu keppni er á mbl.is; hægt er að nálgast hana með því að ýta á "Fólkið" og svo "Besti myndatextinn".