Confessions of a Teenage Dramaqueen er unglinga-gamanmynd með hinni vinsælu leikkonu Lindsay Lohan. Hún er reyndar bara að verða 18 ára í júlí, en byrjaði að vinna fyrir sér 3ja ára sem fyrirsæta.
Hún byrjaði síðan kvikmyndaferil sinn í sjónvarpsþáttaröðinni Another World árið 10 ára, en varð fyrst fræg þegar hún lék aðalhlutverkið í hinni frábæru barna- og fjölskyldumynd Parent Trap árið 1998, þá 12 ára. Næsta risamynd hennar er síðan Freaky Friday frá því í fyrra, þar sem hún leikur á móti Jamie Lee Curtis. Nú eru það Játningarnar og fullt framundan hjá stelpunni, nokkrar kvikmyndir og svei mér ef ekki á að gefa út disk með henni.