Hér er á ferðinni ekta áströlsk mynd. Útlagar koma síendurtekið fyrir í áströlskum þjóðsögum og Ned Kelly er þeirra frægastur. Töffarinn Heath Ledger leikur Ned Kelly - og sagði Jay Leno að það væri mikil áskorun fyrir hann, þar sem allir Ástralar hefðu ákveðnar hugmyndir um "hetjuna". Heath er studdur af mörgum af helstu stjörnum Ástrala sem hafa "meikað" það í Hollywood.
Þessir útlagar voru misgrimmir, en áttu það allir sameiginlegt að vilja græða pening og hata lögguna. Þeir sem hafa gaman af skotbardögum og vilja halda með vonda karlinum, ættu hér að fá eitthvað fyrir sinn snúð.