Þessa dagana þekkjum við Jim Caviezel helst sem Jesú sjálfan Krist, og nú er aftur komið að honum að þjást í hlutverki eiginmannsins þjáða í spennumyndinni Highwaymen.
Jim er forvitnilegur leikari sem erfitt er að henda reiður á. Hlutverkaval hans virðist handahófskennt, kannski þar sem hann kom óvart inn í leiklistina. Hann var upphaflega körfuboltastrákur sem fór að leika þegar hann átti við meiðsli að stríða.
Næsta hlutverk hans er Bobby Jones í samnefndri mynd, en þar segir frá bandarískum golfsnillingi sem hætti á toppnum. Já, hann Jim er sannkallað kameljón.