Maradona er tilfinningarík sál.
Maradona er tilfinningarík sál.
KNATTSPYRNUSTJARNAN Diego Maradona er farinn af sjúkrahúsi í Buenos Aires þar sem hann hefur legið á gjörgæsludeild síðstu 12 daga. Að sögn argentínskra fjölmiðla fór Maradona af sjúkrahúsinu í gærdag en starfsmenn sjúkrahússins hafa ekki staðfest það.

KNATTSPYRNUSTJARNAN Diego Maradona er farinn af sjúkrahúsi í Buenos Aires þar sem hann hefur legið á gjörgæsludeild síðstu 12 daga.

Að sögn argentínskra fjölmiðla fór Maradona af sjúkrahúsinu í gærdag en starfsmenn sjúkrahússins hafa ekki staðfest það.

Ekki er ljóst hvert ferð Maradona var heitið, en hann fékk hjartaáfall og alvarlega lungnasýkingu og var um tíma talinn í lífshættu.