ODDALEIKIR Vals og ÍR annars vegar og Hauka og KA hins vegar verða báðir á sunnudag samkvæmt dagskrá Handknattleikssambandsins.

ODDALEIKIR Vals og ÍR annars vegar og Hauka og KA hins vegar verða báðir á sunnudag samkvæmt dagskrá Handknattleikssambandsins. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, sagði í gær að það þyrfti mikið að gerast til þess að annar oddaleikurinn yrði færður til og leikinn á laugardag í beinni sjónvarpsútsendingu.

"Okkur er illa við að færa til leiki á þessu stigi keppninnar. Það getur hins vegar farið svo að tímasetningar á leikjunum á sunnudag myndu breytast, en það yrði þá gert í samráði við þá aðila sem sýna beint frá þessum leikjum," sagði Einar.