STÖÐ 2 sýnir um þessar mundir áttundu seríuna um Simpson-fjölskylduna óborganlegu á hverjum virkum degi eftir Fréttir og Ísland í dag. Þátturinn í kvöld er sá tíundi af 22 og að venju gengur mikið á hjá þessari viðkunnanlegu fjölskyldu í Springfield.

Hroturnar í Homer eru alveg að ganga frá Marge og hún ákveður að flytja til Patty og Selmu í dálítinn tíma í von um smásvefn. Þær stöllur komast að því að gamall kærasti Marge er orðinn fimmti ríkasti maður Ameríku og hafa samband við hann. Artie, sem leikinn er af Jon Loviz, er enn sjúklega ástfanginn af Marge og býður fjölskyldunni milljón dollara fyrir helgi með henni.

The Simpsons er á dagskrá Stöðvar 2 kl. 19.35.