Bandaríkin 2003. Skífan VHS. (90 mín.) Leikstjórn Sydney J. Bartholomew Jr. Aðalhlutverk Cole og Dylan Sprouse.

HUGMYNDIN að þessari barnamynd er sæt, fín og þörf; að gera mynd um tvíbura með fótboltadellu. Féll líka í góðan jarðveg hjá einum fjögurra ára, sem gagnrýnanda stendur nærri. En það var líka eins gott að hann var ekki eldri, því ekki þarf mikinn þroska til að koma auga á gallana. Myndin er nefnilega vond, illa skrifuð, illa leikin og lýsir fullkominni vanþekkingu á íþróttinni fótbolta. Þeir í Hollywood ættu að halda sig við hafnabolta og ruðning.

Skarphéðinn Guðmundsson