SVONEFND Wesak-hátíð, andleg hátíð sem haldin er víða um heim um helgina, verður í Reykjavík og hefst í kvöld kl. 20. Hátíðin stendur einnig á morgun, laugardag, og sunnudag kl. 13 til 17 og verður haldin í Bolholti 4 á 3. hæð.

Í frétt frá Andlega skólanum kemur fram að hátíðin sé hátíð allra trúarbragða og alls mannkyns. Hún dregur nafn sitt af samnefndum dal í Himalayja-fjöllunum þar sem hátíðin hefur verið haldin lengi.