Gengið á Súlur | Ferðafélag Akureyrar efnir á morgun, laugardaginn 1. maí, til árlegrar gönguferðar á Súlur, bæjarfjall Akureyringa. Er þetta ferð við allra hæfi og og hvetur félagið Akureyringa og gesti þeirra til að taka þátt.
Gengið á Súlur | Ferðafélag Akureyrar efnir á morgun, laugardaginn 1. maí, til árlegrar gönguferðar á Súlur, bæjarfjall Akureyringa.

Er þetta ferð við allra hæfi og og hvetur félagið Akureyringa og gesti þeirra til að taka þátt. Þátttökugjald er ekkert og eru allir velkomnir. Brottför er frá bílastæðinu sunnan sorphauganna á Glerárdal kl. 9. Fararstjórar á vegum FFA verða á staðnum til að leiðbeina fólki.