Brad Pitt og Jennifer Aniston eru eitt paranna á listanum.
Brad Pitt og Jennifer Aniston eru eitt paranna á listanum. — Reuters
PÖR setja svip sinn á lista tímaritsins People yfir 50 fallegustu manneskjur heims árið 2004. Þar eru m.a. leikarahjónin Jennifer Aniston og Brad Pitt. "Ég leit óheppilega út þegar ég var unglingur," segir Aniston í viðtali við tímaritið.

PÖR setja svip sinn á lista tímaritsins People yfir 50 fallegustu manneskjur heims árið 2004. Þar eru m.a. leikarahjónin Jennifer Aniston og Brad Pitt.

"Ég leit óheppilega út þegar ég var unglingur," segir Aniston í viðtali við tímaritið. "Mér fannst ég aldrei vera falleg, aldrei." Hún segir að þau Pitt reyni nú mjög að eignast barn og hafi innréttað barnaherbergi í nýju húsi sínu.

Hjónin og sjónvarpsstjörnurnar Jessica Simpson og Nick Lachey komast einnig á listann, sem og tvíburarnir Mary-Kate og Ashley Olsen, sem njóta mikilla vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar. Aðrar systur, fyrirsæturnar Alexandra og Theodora Richards, eru á listanum en þær eru dætur Keith Richards, gítarleikara Rolling Stones.

Leikkonan Halle Berry kemst á listann, áttunda skiptið í röð og jafnar met stöllu sinnar, Juliu Roberts. Nicole Kidman er þar í sjötta skipti og landi hennar, Ástralinn Hugh Jackman, er á listanum fjórða árið í röð.