— Morgunblaðið/Golli
STJÓRN Landverndar fagnar frumvarpi um stækkun þjóðgarðsins á Þingvöllum og telur mikilvægt að samstarf og samráð verði í hávegum haft við stjórnun hans.

STJÓRN Landverndar fagnar frumvarpi um stækkun þjóðgarðsins á Þingvöllum og telur mikilvægt að samstarf og samráð verði í hávegum haft við stjórnun hans. Stjórn Landverndar fagnar framkomnu frumvarpi til laga um stækkun þjóðgarðsins á Þingvöllum og áformum um að treysta verndun Þingvallavatns, segir í fréttatilkynningu frá Landvernd.

Þar segir einnig að áformuð stækkun þjóðgarðarins sé mikilvægt skref í þá átt að mörk hans miðist við heildstæð vistkerfi og landslagsheildir, eins og lögð er áhersla á í viðmiðunarreglum Alþjóða náttúruverndarsamtakanna (IUCN).

"Stjórn Landverndar telur mikilvægt að við stjórnun þjóðgarðsins verði leitað samstarfs og samráðs við viðkomandi aðila. Þetta er í samræmi við áherslur IUCN og hefur komið mjög vel fram í allri umfjöllun um áformaðan Vatnajökulsþjóðgarð. Í frumvarpinu segir að Þingvallanefnd fari með hlutverk stjórnar og hana skipi þrír alþingsmenn kjörnir af Alþingi. Huga þarf betur að þessu ákvæði. Stjórn Landverndar telur að líta beri til viðkomandi sveitarfélags, Þjóðkirkjunnar, Umhverfisstofnunar, Samtaka ferðaþjónustunnar og umhverfisverndarsamtaka í þessum tilgangi," segir í fréttatilkynningu frá Landvernd.