Húsið er 209 ferm. og bílskúrinn, sem er innbyggður, er 51,8 ferm. Óskað er eftir tilboðum í eignina, sem er til sölu hjá Fasteignamiðstöðinni.
Húsið er 209 ferm. og bílskúrinn, sem er innbyggður, er 51,8 ferm. Óskað er eftir tilboðum í eignina, sem er til sölu hjá Fasteignamiðstöðinni.
Reykjavík - Fasteignamiðstöðin er nú með til sölu einbýlishús með innbyggðum bílskúr við Barðastaði 83 í Reykjavík. Húsið er 209 ferm. og bílskúrinn 51,8 ferm.

Reykjavík - Fasteignamiðstöðin er nú með til sölu einbýlishús með innbyggðum bílskúr við Barðastaði 83 í Reykjavík. Húsið er 209 ferm. og bílskúrinn 51,8 ferm. "Húsið stendur á mjög áhugaverðum stað í jaðri byggðar í Grafarvogi rétt við golfvöllinn," segir Magnús Leópoldsson hjá Fasteignamiðstöðinni.

Svefnherbergi eru fjögur, þar af eitt forstofuherbergi. Eldhúsið er með ljósri viðarlitaðri innréttingu. Fyrir framan eldhúsið er borðstofa, sem er hluti af aðalstofu.

Mjög stór timburverönd er við húsið með heitum potti. Gólfefni eru flísar og parket. Arinn er í stofu og hátt til lofts í öllu húsinu en loft hafa ekki verið tekin niður.

Inngengt er í bílskúr úr forstofu og upphitað plan með niðurgrafinni lýsingu er fyrir framan húsið. "Þetta er eign sem vert er að skoða, sagði Magnús Leópoldsson. "Húsið stendur steinsnar frá Úlfarsá og niður árinnar heyrist vel á kyrrlátum sumarkvöldum, þegar setið er á veröndinni. Óskað er eftir tilboðum."