LÖGREGLAN á Hólmavík tók á fimmta tug ökumanna fyrir of hraðan akstur um helgina en að sögn lögreglu var hraði þeirra sem teknir voru ekki mjög hátt yfir mörkunum.

LÖGREGLAN á Hólmavík tók á fimmta tug ökumanna fyrir of hraðan akstur um helgina en að sögn lögreglu var hraði þeirra sem teknir voru ekki mjög hátt yfir mörkunum.

Enginn var tekinn fyrir ölvun en eitt umferðaróhapp varð á Bjarnarfjarðarhálsi, þegar bíll fór út af veginum og valt. Óljóst er hvernig óhappið bar að en engin meiðsl urðu á fólki. Bíllinn er hins vegar mikið skemmdur.