Norður | |
♠KD65 | |
♥K87 | |
♦KDG109 | |
♣K |
Vestur | Austur |
♠73 | ♠42 |
♥10632 | ♥ÁG4 |
♦854 | ♦Á32 |
♣DG106 | ♣Á9532 |
Suður | |
♠ÁG1098 | |
♥D95 | |
♦76 | |
♣874 |
Lausn: Þetta er augljóslega spurning um tíma: vörnin þarf að sækja fjórða slaginn á hjarta áður en sagnhafi fríar tígulinn. Því hlýtur að vera rétt að skipta yfir í hjarta.
En hvaða hjarta? Það skiptir svo sem ekki máli ef makker á drottninguna, en ef hún er í suður er best að spila GOSANUM. Sagnhafi tekur slaginn á kónginn, spilar trompi tvisvar og sækir tígulásinn. Og nú er að fylgja áætluninni eftir - spila hjartafjarka! Suður reiknar væntanlega með því að gosinn hafi upphaflega verið frá G10 og svínar níunni.
Þessi vörn kostar ekkert, en getur skipt sköpum ef hjartastaðan er þessi.
Stig: Hjartagosinn gefur 10 stig. Fyrir hjartafjarkann (eða ásinn og meira hjarta) fást 5 stig.