LÖGREGLUNNI á Akureyri var tilkynnt um umferðaróhapp á laugardaginn sem bar til með þeim hætti að afturdekk skaust undan bifreið í akstri og lenti á bifreið sem kom akandi á móti.

LÖGREGLUNNI á Akureyri var tilkynnt um umferðaróhapp á laugardaginn sem bar til með þeim hætti að afturdekk skaust undan bifreið í akstri og lenti á bifreið sem kom akandi á móti. Dekkið skemmdi bílinn talsvert og þurfti lögregla að draga hann á verkstæði.

Á laugardagskvöldið varð bílvelta í Eyjafirði, þegar bifreið lenti utan vegar og valt en lenti á hjólunum. Meiðsl á fólki voru minni háttar en bíllinn er mikið skemmdur.