— AP
PHILIP Rabinovitz, 100 ára gamall Suður-Afríkumaður, fagnar hér eftir tilraun sína í Höfðaborg í gær til að slá heimsmet aldargamalla öldunga í 100 m hlaupi.

PHILIP Rabinovitz, 100 ára gamall Suður-Afríkumaður, fagnar hér eftir tilraun sína í Höfðaborg í gær til að slá heimsmet aldargamalla öldunga í 100 m hlaupi.

Hann hljóp vegalengdina á 28,7 sekúndum, sem er nærri átta sekúndum betri tími en gildandi heimsmet í flokki 100 ára og eldri. Því miður reyndist þó ekki unnt að staðfesta hið nýja met Rabinovitz, eða "Fljúgandi Phils" eins og vinir hans og aðdáendur kalla hann, þar sem tölvustýrður tímatökubúnaður hlaupabrautarinnar bilaði.