Önnur umferð hafin | Brúðubíllinn er að hefja aðra umferð um gæsluvelli og opin svæði í Reykjavík og verða Sögur úr Brúðubílnum frumsýndar í dag kl. 10 á gæsluvellinum að Brekkuhúsum í Grafarvogi og kl. 14 á gæsluvellinum að Arnarbakka í Breiðholti.

Sögur úr Brúðubílnum eru fjögur leikrit, Dótakassinn, Skrúbburinn baðar Lilla, Hin sanna saga um úlfinn og grísina þrjá og loks lítill söngleikur frá Afríku.

Sýningin tekur 30 mínútur og eru allir velkomnir á gæsluvellina að horfa á Brúðubílinn.