Maria Sharapova var að vonum ánægð með sigurinn.
Maria Sharapova var að vonum ánægð með sigurinn. — Reuters
MARIA Sharapova, sautján ára stúlka frá Rússlandi, kom, sá og sigraði á Wimbledonmótinu í tennis; lagði Serenu Williams í úrslitaleik á laugardaginn.

MARIA Sharapova, sautján ára stúlka frá Rússlandi, kom, sá og sigraði á Wimbledonmótinu í tennis; lagði Serenu Williams í úrslitaleik á laugardaginn. Hún er þó ekki ókunn Wimbledon því þegar hún var fimmtán ára tapaði hún úrslitaleiknum á unglingamóti vallarins fræga. En á laugardaginn gekk allt upp hjá þessari nýju stjörnu, hún sigraði 6-1 og 6-4. Tiltölulega auðveldur sigur.

Í karlaflokki sigraði Svisslendingurinn Roger Federer Bandaríkjamanninn Andy Roddick 4-6, 7-5, 7-6 og 6-4.