— Morgunblaðið/Jim Smart
VATN er ekki einungis manneskjunni lífsnauðsynlegt til drykkjar og þrifa heldur getur það jafnframt verið hið skemmtilegasta leikfang og brúklegt þannig í ýmsu formi.
VATN er ekki einungis manneskjunni lífsnauðsynlegt til drykkjar og þrifa heldur getur það jafnframt verið hið skemmtilegasta leikfang og brúklegt þannig í ýmsu formi. Í Nauthólsvík í Fossvogi er alla jafna margt um manninn á góðviðrisdögum en rigningardropar eða ský hafa sjaldnast stöðvað yngstu kynslóðina frá því að leika sína leiki. Hún getur líka gert það án afskipta hinna fullorðnu. Þá getur verið gott að vera í stígvélum enda enn skemmtilegra að sulla ef tærnar verða ekki allt of kaldar með tilheyrandi nefrennsli og hnerra.