ÍSLAND sigraði Finnland, 3:2, í leik um 7. sætið á opna Norðurlandamótinu fyrir stúlknalandslið í knattspyrnu, undir 17 ára, sem lauk í Kaupmannahöfn í gær.

ÍSLAND sigraði Finnland, 3:2, í leik um 7. sætið á opna Norðurlandamótinu fyrir stúlknalandslið í knattspyrnu, undir 17 ára, sem lauk í Kaupmannahöfn í gær. Katrín Ómarsdóttir kom íslenska liðinu tvisvar yfir, í fyrri og síðari hálfleik, en Finnar náðu að jafna í bæði skiptin. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði síðan sigurmarkið þegar fjórar mínútur voru til leiksloka.

Íslenska liðið gerði jafntefli við Noreg í riðlakeppninni en tapaði fyrir Svíþjóð og Þýskalandi.