GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti og John Kerry, mótframbjóðandi hans úr Demókrataflokknum, njóta hnífjafns fylgis samkvæmt nýjustu skoðanakönuninni vestra.
Formaður Demókrataflokksins, Terry McAuliffe, fór þess formlega á leit við vinstrimanninn kunna Ralph Nader að draga forsetaframboð sitt til baka þar sem framboð hans gæti orðið til þess að Bandaríkjamenn sætu uppi með repúblikanann Bush í Hvíta húsinu eitt kjörtímabil enn.
"Hann verður að hætta," sagði McAuliffe á CBS um Nader. Fylgi Kerrys mælist 45% en Bush 44%.
Washington. AFP.