LARS Ulrich, trommuleikari Metallica, sagði í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins fyrir tónleikana að það væri frábært að koma hingað til lands og leika fyrir Íslendinga.

LARS Ulrich, trommuleikari Metallica, sagði í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins fyrir tónleikana að það væri frábært að koma hingað til lands og leika fyrir Íslendinga. Hann segir að sveitin finni ávallt fyrir mikilli hlýju þegar þeir koma til Evrópu og þá sérstaklega eftir útgáfu plötunnar St. Anger, sem er sú vinsælasta síðan Svarta platan var gefin út árið 1991. Þá hafi verið frábært að ljúka tónleikaferðalaginu hér á landi.

Lars, sem er danskur, þótti það nokkuð kúnstugt að koma hingað til lands þar sem litið sé upp til Dana, þeir séu eins konar "stóri bróðir". Hann er nú búsettur í Bandaríkjunum og að hans sögn er þar litið á Dani sem hálfgerða smælingja.